Karlakvöld hafa góð áhrif á kynlífið

Mynd 1 af 2
Jason Statham sletti úr klaufunum á Golden Globe-verðlaunum ásamt vinum sínum. GUS RUELAS

Miðaldra menn ættu ekki að leggja karlakvöld á hilluna af tillitssemi við eiginkonuna því það getur haft neikvæð áhrif á kynlífið ef marka má nýja rannsókn sem gerð var við Cornell-háskóla og sagt er frá á vef Telegraph. Rannsóknin sýnir að menn um og yfir miðjan aldur glíma frekar við kynlífsvandamál ef þeir hætta að njóta gæðatíma með bestu vinunum.

Benjamin Cornwell stýrði rannsókninni og segir hann það geta haft vond áhrif á kynlíf miðaldra manna þegar fjölskyldulífið krefjist þess að þeir hætti að eiga sínar næðisstundir með bestu vinunum. Gamalgróinn karlavinskapur þróist oft með árunum yfir í hjónavinskap. Menn hætti þannig að hitta nánustu karlvinina á sínum eigin forsendum og missi af tækifærinu til að eiga stund fyrir sig, viðra hugmyndir og létta á áhyggjum í einkalífi eða starfi.

Þegar svo sé ástatt finnist mörgum körlum sem þeir hafi tapað sjálfstæði sínu og um leið hluta af karlmennsku sinni, oft með þeim afleiðingum að þeir glími við risvandamál og eigi í erfiðleikum með að fá fullnægingu.

Ráð til kvenna sé því að reyna ekki að standa í veginum fyrir því að eiginmennirnir hitti bestu vinina án þeirra, heldur miklu frekar hvetja til þess að þeir skipuleggi reglulega sín karlakvöld. Það muni skila sér margfalt í formi betra kynlífs. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Notaðu lækningajurtir við makaleit

Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir.
Í gær, 22:35 Anna Rósa grasalæknir segir að vallhumall sé töfrajurt sem geti uppfyllt óskir okkar.   Meira »

Krakkarnir halda Klum í formi

Heidi Klum er í góðu formi.
20.2. Heidi Klum hoppar á trampolíninu og viðrar hundana með börnunum fjórum.  Meira »

Góð leið til að fá sléttan maga

Anna Eiríksdóttir.
Í gær, 20:27 Anna Eiríksdóttir kennir okkur að styrkja kviðvöðvana með æfingu sem virkar óheyrilega vel.   Meira »

Solla Eiríks besti hráfæðiskokkur heims

Sólveig Eiríksdóttir á Gló.
20.2. Sólveig Eiríksdóttir heilsufrömuður sigraði í keppninni um besta hráfæðiskokk heims.   Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is