Demi Moore reykti gras og var hætt komin

Demi Moore.
Demi Moore. mbl.is/Samsett mynd

Leikkonan Demi Moore var lögð inn á spítala í síðustu viku eftir að hafa tekið inn hlátursgas. Hún hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir að hún skildi við hinn unga eiginmann sinn, leikarann Ashton Kutcher, eftir að upp um framhjáhald hans komst.

Vinir Moore hringdu á neyðarlínuna 911 og var leikkonan í framhaldinu flutt á sjúkrahús. Nú hefur starfsmaður 911 leyst frá skjóðunni og segir að hún hafi verið hætt komin. Starfsmaðurinn segir að Moore hafi ekki komið upp orði og hafi vinir hennar talað við neyðarlínuna. Á tímabili var hún með óreglulegan andardrátt.

Talsmaður leikkonunnar sagði í vikunni að Moore væri uppgefin á líkama og sál og vildi ekki kannast við að hún væri á eiturlyfjum.

Demi Moore.
Demi Moore. mbl.is/Cover Media
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál