Fullkomið húsmæðraorlof til Algarve
Það er góður siður að fara reglulega í ferðalag með vinkonum sínum. Þær sem hafa unun af gönguferðum ættu að slást í för með Önnu Dóru Hermannsdóttur jógakennara en hún fer með hóp til Algarve í Portúgal dagana 28. ágúst til 4. september.
Þótt flestir þekki Algarve sem sólstrandabæ eru færri sem vita að á staðnum er mikið af spennandi gönguleiðum og margt hægt að uppgötva fyrir þá sem leggja land undir fót.
Í ferðinni verður farið upp í fjöllin, um friðsælar sveitir og gegnum falleg hvítkölkuð þorp. Í þeim gengur lífið sinn vanagang, konur sitja á götum og torgum með fallega handavinnu og hægt er að sjá leirkerasmiðinn að störfum.
Héraðið er frægt fyrir handverk sem víða er hægt að kaupa á mörkuðum og götum úti eða í litlum og persónulegum verslunum s.s. handofnar körfur, útsaum og leirmuni en einnig hunang, framandi ávexti, möndlur, ólífur og fleiri afurðir.
Leiðin liggur líka um blómum skrýdd engi, forna ávaxtaakra, fuglafriðland og undurfagrar strendur.
Fyrstu tvo dagana er dvalið í bænum Monchique sem liggur á milli tveggja hæstu fjalla hérðsins (Foia 902 m). Gengið er upp á bæði fjöllin til að njóta einstaks útsýnis yfir sveitirnar í kring.
Síðustu fimm næturnar er gist í bænum Loule, sem er gamall lítill bær nokkra kílómetra frá ströndinni. Talið er að bærinn sé frá um 400 f.Kr. og er hann þekktur fyrir fallegt hefðbundið handverk og einn litskrúðugasta og fjölbreyttasta markaðinn í Algarve.
Á hverjum morgni verður boðið upp á klukkutíma jóga úti í morgunhlýjunni og einnig verður því fléttað inn í göngu dagsins. HÉR er hægt að skoða ferðina nánar.
























