Dansinn er líf okkar og ástríða

Ástrós og Matthias Allain. stækka

Ástrós og Matthias Allain. Árni Sæberg

Morgunblaðið Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is

„Tilfinningin sem fylgir því að dansa er ólýsanleg. Ég hverf inn í minn eigin heim þar sem ekkert er nema ég, dansfélagi minn og dansinn. Þetta snýst líka um hvernig ég tjái mínar tilfinningar. Og að vilja ná árangri. Þetta er það sem ég er góð í og ég vil komast langt í því. Keppnisskapið þarf vissulega að vera til staðar. Og það er nauðsynlegt að hafa sjálfsaga,“ segir Ástrós Traustadóttir sem er aðeins 17 ára en hún og dansherrann hennar og jafnaldri, hinn franski Matthias Allain, sigruðu í latino-dönsum í sínum aldursflokki á Reykjavíkurleikunum (Reykjavik International Games) sem nýlega voru haldnir hér.

Er ég sjálfur í dansinum

Matthias hefur dansað lengur en Ástrós, eða frá því hann var ellefu ára. „Mér líst rosalega vel á Ástrós sem dansfélaga en reynsla okkar saman er enn svo stutt, við þurfum að dansa saman lengur til að ná enn betri árangri. Við höfum verið að keppa undanfarna mánuði um alla Evrópu með góðum árangri, við unnum til dæmis bikarmót Frakklands í okkar flokki sem heitir Youth, en elstu keppendur þar eru 17 ára eins og við. Það er stíft prógramm framundan hjá okkur, við munum keppa úti fyrir Frakkland hverja einustu helgi fram til 18. mars. Evrópumeistaramótið er í mars og svo komum við til Íslands í sumar til að æfa og vinna. Síðan förum við til Kína á heimsmeistaramótið í nóvember. Dansinn er líf mitt, framtíð mín og ástríða mín. Þegar ég dansa þá er ég fullkomlega ég sjálfur,“ segir Matthias sem er mikill listamaður og málar olíumálverk í frístundum sínum.

Meiri möguleikar í útlöndum

Ástrós flutti út til Frakklands snemma síðastliðið haust til þess að geta dansað með Matthiasi. „Ég vildi eitthvað meira en það sem hægt er að gera hér heima, því það eru miklu meiri möguleikar úti. Það er stutt og ódýrt að ferðast til annarra Evrópulanda frá Frakklandi og fyrir vikið keppum við á miklu fleiri mótum en íslensk pör hafa tækifæri til sem búa hér heima. Það er líka mjög áríðandi að vera sem mest sýnilegur í þessum heimi ef maður ætlar að ná árangri. Og reynslan er ómetanleg. Þetta síðasta ár okkar í Youth er rosalega mikilvægt fyrir okkur, og núna einbeitum við okkur alfarið að því,“ segir Ástrós sem býr í Suður-Frakklandi, heima hjá Matthiasi.

Verð að læra tungumálið

„Ég leigi herbergi á heimili hans og við erum í raun eins og systkini. En það tekur tíma að aðlagast nýjum dansherra, við þurfum að kynnast sem persónur og líka að læra hvort á annað sem dansfélagar. Við æfum alla virka daga og keppum nánast allar helgar,“ segir Ástrós sem neitar því ekki að það reyni á að vera ein úti í Frakklandi, hún er þar án fjölskyldu sinnar og vina og auk þess talar fjölskylda Matthiasar mjög litla ensku. „Ég er að læra frönsku og Matthias er líka að bæta sig í enskunni. Þetta gerir mér vissulega erfitt fyrir við að kynnast fólki, en ég geri allt fyrir dansinn. Ég vil dansa og geri það sem þarf að gera. Ég er svo heppin að íslensk vinkona mín sem er að gera það sama og ég, að dansa við franskan strák, býr í klukkutíma fjarlægð frá mér og við hittumst mikið. Það er rosa gott að hafa hana.“

Ákvað að gefa allt í dansinn

Ástrós segist vera frekar óvenjuleg í dansheiminum af því hún byrjaði svo seint að dansa. „Það var ekki fyrr en ég var fimmtán ára eða fyrir rúmum tveimur árum. Ég hafði vissulega verið í djassballett í mörg ár hjá Báru og ég var líka aðeins í fimleikum til að byggja upp líkamlegan styrk. En þegar ég prófaði samkvæmisdansa hjá Dansskóla Ragnars Sverrissonar þá fann ég strax að þetta var eitthvað fyrir mig. Ég dansaði fyrst með strák sem er í Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar og ég er enn skráð þar, þó svo að ég keppi núna fyrir Frakkland. Aðalþjálfarinn okkar hér heima var Rússinn Maxim Petrof, en ég þurfti líka að taka marga aukatíma hjá Helgu Dögg því þetta var allt svo nýtt fyrir mér. Ég dansaði fjóra til sjö tíma á dag sem varð til þess að ég náði ekki að sinna náminu mínu í Fjölbraut í Garðabæ. Ég þurfti því að velja og hafna. Og ég valdi dansinn. Ég hætti í skólanum þegar ég fékk þetta tækifæri til að fara út til Frakklands. Ég ákvað að gefa allt í dansinn,“ segir Ástrós sem hitti Matthias í fyrsta sinn í ágúst úti í Nice. „Við tókum prufu til að sjá hvort við pössuðum saman sem danspar og það gekk svona rosalega vel. Við höfum verið að dansa síðan.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is