Sex skotheld ráð fyrir þá sem nenna ekki
Ert þú ein/n af þeim sem hafa sig ekki af stað í ræktina? Mundu að stutt æfing er betri en engin. Ágústa Johnson deilir sex góðum ráðum fyrir þá sem eru alltaf á leiðinni í líkamsrækt en komast ekki af stað.
1. Stutt æfing er betri en engin. Öll þjálfun skiptir máli. Það koma dagar þegar þér finnst þú ekki finna tíma fyrir líkamsræktina. Ekki detta í „allt eða ekkert“ hugsunina.
2. Finndu 15 mínútur á þessum annasömu dögum til að hreyfa þig. Ef þú ert efins um að hægt sé að ná einhverri þjálfun sem skiptir máli á þessum tíma þá get ég fullvissað þig um að allt gerir gagn.
3. Öll hreyfing er betri en engin. Prófaðu eftirfarandi tillögur til að koma aukahreyfingu inn í annasama dagskrá þína og þú getur verið viss um að þú ert að vinna markvisst að þínum markmiðum.
4. Notaðu alla stiga sem þú kemst í. Hjartslátturinn hækkar við að hlaupa stigana í stað þess að taka lyftu. Oft er fljótlegra að fara stigann heldur en að bíða eftir lyftunni og um leið færðu hreyfingu sem skiptir máli.
5. Farðu í göngutúr eins oft og þú getur, t.d. strax á morgnana, í hádeginu, eða eftir kvöldmat. Góð hugmynd til að ná að strunsa aðeins og fá ferskt loft í lungun um leið, er að fara út í hádeginu. Er e.t.v. einhver staður í göngufæri þar sem þú getur keypt þér hollt og gott salat og svo geturðu strunsað aftur til baka í vinnuna.
6. Sniðugt getur verið að hafa gott sippuband heima fyrir eða æfingakerfi á DVD. Það er hægt að nota slíkt hvenær sem er. Ef þú hefur misst af því að komast á æfinguna þína, getur 15 mín sipp eða stutt æfingakerfi á DVD sem þú skellir í tækið þitt þegar þér hentar, gert gæfumuninn.
Ekki hugsa lengur, láttu verða af því. Þú hefur engu að tapa, en allt að vinna!
HÉR er hægt að lesa pistilinn í heild sinni.
























