Slökun er líka nauðsynleg fyrir börnin

Mynd 1 af 3
Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir. Sigurgeir Sigurðsson
Morgunblaðið María Ólafsdóttir maria@mbl.is

Á námskeiðinu Jógakrakkar eru gerðar skemmtilegar jógaæfingar, farið í fjölbreytta leiki sem þjálfa athygli og samhæfingu, hugleitt og slakað á svo fátt eitt sé nefnt. Kennarinn, Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir, fræðir krakkana líka um jóga og þau fá að kynnast jógadýrum. En eitt slíkt kemur í heimsókn á hverju námskeiði. Námskeiðið er ætlað fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára en Arnbjörg Kristín hefur kennt krökkum jóga síðan síðastliðið haust. Einnig er hún í samstarfi með öðrum barnajógakennara, Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur. En þær verða með námskeiðið Leikum saman á degi heimshamingju þann 11. febrúar nk. í jógasal Ljósheima fyrir foreldra og börn.

Foreldrar og börn í jóga

„Að upplagi er ég kundalini-jógakennari og starfa við meðferðir en bætti síðan barnajógakennaranáminu við mig. Ég hef kennt það síðan síðastliðið haust og er nú að byggja upp krakkajógastarfið í jógasal Ljósheima í Borgartúni 3. Þar er ég nú byrjuð með nýtt námskeiðsform þar sem krakkarnir iðka jóga saman í fimm skipti og læra grunninn í jóga og verða þrjú slík námskeið haldin nú á vorönn. Mér finnst þetta starf mikilvægt, skemmtilegt og mjög gefandi. Fullorðið fólk velur að fara reglulega í jóga til að kyrra hugann og slaka á og er mjög eðlilegt að börnin þurfi það líka. Við búum öll í sama samfélaginu sem er ríkt af áreiti og hraða. Þau þurfa líka slökun og læra leiðir til að kyrra hugann og slaka á. Jógakrakkanámskeiðin næra þau á skemmtilega hátt,“ segir Arnbjörg Kristín.

Jógadýr

Margar jógastöður eru kenndar við dýr og í hverjum tíma er poki með leikfangadýrum látinn ganga. Hvert barn dregur úr pokanum og gerir síðan þá jógastellingu sem dýrið segir til um. Stundum búa börnin líka til sögu í kringum dýrið og þá er farið hringinn og smám saman bætt við söguna með innleggi hvers og eins.

„Ég segi þeim líka til hvers við gerum jóga og gef þeim sömu upplýsingar og ég myndi gefa fullorðnum en orða það á einfaldan hátt. Ég segi þeim t.d. frá fingrunum og fingrastöðu í hugleiðslu. Ef þú lætur þumal snerta vísifingur er það kallað viskustaðan í tímunum okkar en ef þumall snertir löngutöng er það fyrir þolinmæði. Ég læt þau velja sér fingur í hugleiðslunni eftir hvað þau þurfa. Þá horfa þau inn á við og hlusta. Einn strákur velur oft alla putta, það er líka allt í lagi. En þetta er mjög skemmtilegt. Þau tileinka sér efnið og þau sem eru búin að vera lengur ná að sitja kyrr og hugleiða í þrjár mínútur sem var bara hálf mínúta fyrst. Þegar það eru komnir fleiri öruggir í hópinn finna hinir fyrir því og það hjálpar þeim að tileinka sér jógað, segir Arnbjörg Kristín.

Í seinasta tímanum eru foreldrar boðnir velkomnir og þá kennir Arnbjörg Kristín öllum hópnum jógaleiki sem foreldrar og börn geta farið í saman eftir að námskeiði lýkur. Ef mamma og pabbi komast ekki eru amma og afi eða aðrir úr fjölskyldunni velkomnir.

Dagleg iðkun

Jóga hefur blómstrað upp á síðkastið og segir Arnbjörg Kristín marga sem hafi ekki verið starfandi í kennslu nú vera farna að kenna. Í samfélaginu í dag er gott að kyrra hugann daglega og leita lífsfyllingar innan frá.

„Ég var í hefðbundinni líkamsrækt og fann að það nærði mig ekki alveg nóg. Þannig að ég fór í jógakennaranám bara fyrir mig til að læra að stunda það daglega. Þá bjó ég á Akureyri þar sem voru ekki daglegir jógatímar en það endaði þannig að ég fór að kenna mjög mikið. Nú er ég í kundalini jógaþerapíu-námi og vinn mikið með einstaklingum sem vilja jóga og hugleiðslu til heimaiðkunar. Þá kenni ég jóga í vatni í Boðaþingi og á Grensás sem samanstendur af jógaæfingum, fljótandi slökun og hugleiðslu. Slíkt er sérstaklega gott fyrir fólk sem á erfitt með hreyfingar þó námskeiðið sé vissulega opið öllum. Sjálf stunda ég jóga daglega og er hluti af því heimaverkefni í náminu mínu þar sem mikil áhersla er lögð á eigin iðkun. Ég er jú að læra þetta til að hjálpa fólki að líða betur og þarf að upplifa áhrif iðkunar sjálf. En ég hef mjög gott af þessu og nýt þessa lífsstíls. Það heillar mig líka að ég get gert þetta hvar sem er því ég ferðast mikið og held námskeið á landsbyggðinni ásamt því að kenna aðra hverja helgi í Orkulundi á Akureyri,“ segir Arnbjörg Kristín.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is