Clooney á safakúr
George Clooney strengdi þess heit um áramótin að temja sér hollari matarvenjur og er nú á safakúr. Leikarinn geðþekki er lítið fyrir að koma fram í fjölmiðlum en í viðtalsþættinum Person to Person opnar hann heimili sitt í Studio City í Los Angeles fyrir sjónvarpsáhorfendum og leyfir þeim að kíkja inn í ísskápinn.
„Ég er ánægður með að hafa tekið ákvörðun um að borða hollari mat og fara á safakúr,“ segir Clooney í þættinum. „Ég fæ góða konu til að útbúa fyrir mig salöt og safa og hún heldur mér við efnið.“ Því til sönnunar opnar leikarinn ísskápinn, fullan af grænmeti, ávöxtum og öðrum heilnæmum mat.
Sjónvarpsáhorfendur fá að skyggnast inn í líf leikarans og skoða 700 fermetra glæsihúsið sem hann keypti árið 1995 af söngkonunni Stevie Nicks. Clooney á annað glæsilegt hús við Como-vatn á Ítalíu og flýgur þangað ásamt kærustunni Stacy Keibler hvenær sem tækifæri gefst til.
Þátturinn með Clooney verður sýndur innan skamms í bandarísku sjónvarpi.
























