13 kíló fokin og aldrei verið hamingjusamari

Mynd 1 af 6
Kristín Árnadóttir geislar eftir að hún losaði sig við aukakílóin. Kristinn Ingvarsson

Kristín Árnadóttir gerði mikla breytingu á lífi sínu í apríl 2010 og breytti algerlega um mataræði. Síðan þá eru 13 kíló fokin og hún er öll léttari á sér og líður betur. Kristín verður 50 ára síðar á þessu ári og var markmið hennar að vera í sínu besta formi á afmælisdaginn.

„Ég breytti mataræði fyrir tæpum 2 árum. Nú hugsa ég betur um hvað ég læt ofan í mig og geri matinn frá grunni.  Ég borða mikið af grænmeti, ávöxtum, grænmetissúpum, feitum fiski og lambakjöti. Ég drekk græna drykki, tek inn góðar olíur, borða chia-fræ, hampfræ, tek inn góð vítamín og borða hnetur, möndlur og drekk mikið af vatni. Ég borða mat sem ég finn að gefur mér góða orku og borða fimm sinnum á dag jafnt yfir daginn. Það skiptir miklu máli,“ segir Kristín sem er alsæl með sitt nýja líf.

Í dag borðar hún ekki unninn mat, ekki unnið morgunkorn eins og Cheerios, er hætt að borða kjúkling og svínakjöt. Auk þess borðar hún ekki hvítan sykur, ger og dósamat og er hætt að drekka vín. Hún drekkur hvorki gosdrykki né kaffi og sneiðir hjá mjólkurvörum. Auk þess sleppir hún pakkamat, reyktum mat og áleggi. Þegar hún er spurð að því hvort hún sakni einhvers segir hún svo ekki vera.

„Mér líður svo miklu betur og þetta gefur mér svo mikið. Það er verkefni að breyta um lífsstíl og tekur tíma og það þarf þolinmæði. Ég fæ svo margt gott í staðinn með bættri líðan, liðleika og ánægju. Ég fæ miklu meira út úr lífinu í dag, það er bónus.“

Eftir að Kristín breytti mataræði sínu fór hún að hreyfa sig meira. Hún byrjaði á því að labba og stundaði útivist fjórum sinnum í viku síðasta sumar. Í hvert skipti gekk hún 8-10 km. Svo kom löngunin upp að styrkja líkamann ennþá meira og þá skráði hún sig á Stjörnuþjálfunarnámskeið í Hreyfingu og hefur verið mjög dugleg að æfa síðan í september.

„Ég hafði ekki stundað líkamsrækt áður að neinu marki fyrr en ég byrjaði í Hreyfingu. Það hentar mér mjög vel að vera á námskeiðum. Þar er gott utanumhald, eftirfylgni, frábærir kennarar og skemmtilegur hópur.  Hlakka alltaf til að mæta,“ segir Kristín. 

Þegar Kristín er spurð að því hvort það hafi ekki verið erfitt að breyta um lífsstíl segir hún að það kosti aðallega gott skipulag.

„Ég þarf að fara í nokkrar búðir þegar ég kaupi inn og yfirleitt kaupi ég inn fyrir nokkra daga í einu. Mér finnst mikilvægt að ákveða fyrirfram hvað ég ætla að borða næstu daga. Ég tek með mér nesti í vinnuna og hef það hugfast að ég er að gera þetta fyrir sjálfa mig, ekki fyrir aðra.“

Kristín er mun orkumeiri eftir að hún breytti um lífsstíl. „Ég finn ekki fyrir þreytu í líkama og sál og er alltaf hress og vel upplögð. Það sem einkennir alla sem eru hamingjusamir er að þeir afneita sér ekki og hafa heimild til að vera eins og þeir eru.“

Hefur líf þitt breyst eftir að þú breyttir um lífsstíl? „Ég er mun ánægðari með sjálfa mig og er miklu lífsglaðari. Ég hef áhuga á að gera betur og halda áfram. Auk þess hefur fataskápurinn minn breyst en ég hef farið niður um 2-3 fatastærðir.“

Eftir að Kristín breytti lífsstíl sínum hefur hún bæði fengið jákvæð og neikvæð viðbrögð. „Sumar konur hafa áhyggjur af því að ég ætli að grennast meira,“ segir hún og hlær. „Annars samgleðjast flestir mér. Ég læt neikvæðni ekkert á mig fá og held ótrauð áfram. Það getur ekkert stoppað mig.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is