Stefna á hæsta tind Íslands

Mynd 1 af 2

66°NORÐUR og Íslenskir fjallaleiðsögumenn sameina krafta sína á ný og bjóða upp á hina vinsælu æfingaáætlun „Toppaðu með 66°NORÐUR og Íslenskum fjallaleiðsögumönnum“. Þetta er fimmta árið sem verkefnið er haldið en það veitir fólki tækifæri til að ganga á Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands (2110 m), sem er á suðurhluta Vatnajökuls, stærsta jökuls í Evrópu.

Áætlun verkefnisins er í tveimur þáttum. Annars vegar eru fyrirlestrar og námskeið, þar sem þátttakendur eru fræddir um næringu, klæðnað, búnað, öryggi og umhverfislega ábyrgð. Hins vegar eru fimmtán göngur, sem ætlað er að efla kunnáttu, líkamlegt form og reynslu þátttakenda áður en haldið er á Hvannadalshnúk. Þjálfunin hefst í febrúar og lýkur með Hnúksferð í maí. Í fyrra náðu um 120 manns að standa á hæsta tindi Íslands eftir að hafa tekið þátt í æfingadagskrá Toppaðu með 66°NORÐUR og Íslenskum fjallaleiðsögumönnum.

Fyrirtækin tvö hafa umhverfisvitund að leiðarljósi og leggja hart að sér að nota viðburðinn sem fræðslufarveg í þeim tilgangi að göngufólk geti fræðst um hlýnun jarðar og áhrif hennar á jökla Íslands. Íslenskir fjallaleiðsögumenn hafa áralanga reynslu í fjallaleiðsögn og 66°NORÐUR er leiðandi við þróun útivistarfatnaðar sem gerir göngufólki kleift að njóta útivistar við erfiðar aðstæður.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is