Undirbúningsnámskeið fyrir Laugaveginn

stækka

mbl.is

Laugavegshlaupið er er 55 kílómetra hlaup sem verður æ vinsælla. Það fer fram í sumar hinn 14. júlí og nú ætlar

Hlaup.is í samvinnu við Sigurð P. Sigmundsson að bjóða upp á 4 mánaða undirbúningsnámskeið fyrir þetta hlaup. Þetta undirbúningsnámskeið verður frá 8. mars til 14. júlí og þeir sem ætla að leiðbeina eru hinir reyndu hlauparar Sigurður P. Sigmundsson, fyrrverandi Íslandsmethafi í maraþoni og margreyndur Laugavegsfari, og Torfi H. Leifsson, umsjónarmaður hlaup.is.

Í tilkynningu á hlaup.is segir að til að tryggja að hlaupið verði ánægjuleg og skemmtileg reynsla og að sem bestur árangur náist í hlaupinu án áfalla, sé mjög mikilvægt að undirbúa sig vel.

Árlegur fjöldi hingað til hefur verið á bilinu 30-40 manns og hafa þátttakendur lokið hlaupinu á bilinu 5:00 klst. til 9:00 klst. Námskeiðið hentar því fólki á öllum aldri og á mismunandi getustigi. Tekið er mið af persónulegum áætlunum af getu hvers og eins og áætlanir sniðnar að markmiðum hvers hlaupara.

Æskilegt er að allir skrái sig fyrir 1. mars en þó verður skráning opin út marsmánuð. Undirbúningsfundur verður fimmtudaginn 8. mars kl. 20 í fyrirlestrarsal á 3. hæð í húsi ÍSÍ í Laugardalnum.

Í undirbúningnum felst eftirfarandi:

Persónuleg áætlun allan tímann, en til 4 vikna í senn, sem tekur mið af fyrri hlaupareynslu, meiðslum, núverandi stöðu og fleiru.

Farið verður sérstaklega í styrktaræfingar sem nýtast fyrir Laugavegshlaupið.

Ein samæfing í miðri viku. Í Laugardalnum fram í miðjan apríl en eftir það til skiptis í Laugardal og Heiðmörk ásamt fleiri stöðum.

Ráðgert er að fara sameiginlega í nokkur fjallahlaup (Esjan, Hengillinn, Helgafell) í maí og júní.

Fyrirlestur í upphafi þar sem farið verður yfir alla þætti í undirbúningi, æfingarnar, útbúnað og fleira.

Aðgangur að þjálfurunum allan tímann í tölvupósti og/eða í síma.

Farið yfir ýmsa þjálfunarfræðilega þætti og frekari undirbúning á æfingum.

Fyrirlestur einni viku fyrir Laugaveginn þar sem farið verður yfir lokaundirbúninginn.

Öllum sem taka þátt í námskeiðinu verður fylgt eftir í Laugavegshlaupinu. Þjálfarar verða til staðar við upphaf hlaups og taka á móti öllum við endamarkið.

Mánudaginn 16. júlí verður haldin grillveisla fyrir hópinn þar sem upplifunin af Laugavegshlaupinu verður rædd og fleira.

Þeir sem vilja skrá sig eða hafa spurningar geta sent póst á Torfa H. Leifsson, torfi@hlaup.is, eða hringt í hann í síma 845-1600. Einnig er hægt að senda póst á Sigurð P. Sigmundsson: siggip@hlaup.is, eða hringja í sími 864-6766. Líka er hægt að skrá sig beint á vefslóðinni hlaup.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is