Hálkuhelgi kostaði tugi milljóna kr.

Mynd 1 af 2
Friðrik Tryggvason
Morgunblaðið Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is

Kostnaður samfélagsins vegna hálkuslysa að undanförnu hleypur á milljónum. Þetta kemur fram í grein eftir Elísabetu Benedikz, yfirlækni bráðadeildar Landspítalans, í nýjasta hefti Læknablaðsins sem kom út fyrir helgina. „Við fáum alltaf svona toppa sem skapa mikið álag á deildinni. Þetta er nokkuð sem bókstaflega fylgir dagatali,“ segir Elísabet.

Hundrað hálkuslys

Helgina 5. til 7. janúar leituðu nærri 100 manns á bráðadeildir Landspítalans vegna hálkutengdra slysa, flestir vegna falls eða umferðaróhappa. Þetta álag kom í sjálfu sér ekki á óvart segir Elísabet og bendir á að dagana á undan hafi snjóað, svo rignt og loks fryst. Fyrir vikið hafi verið hálka á öllum götum á höfuðborgarsvæðinu og torvelt að komast leiðar sinnar. Margir hafi bylst eða brotnað og þurft á slysadeild. Fjöldinn allur af þessu fólki reyndist beinbrotinn; líklega um og yfir 20 manns.

„Öllum þessum óhöppum fylgir umtalsverður kostnaður. Beinbrot getur þýtt vinnutap í 4-6 vikur og stundum lengur,“ segir Elísabet. Í grein sinni gefur hún sér þær forsendur að 20 manns með 350 þúsund króna meðaltekjur á mánuði hafi handleggs- eða ökklabrotnað og megi þá reikna með að fólk sé frá vinnu í sex vikur að meðaltali. Tapaður launakostnaður vegna þess sé ríflega 10 milljónir króna og sé launatengdum gjöldum bætt við sé upphæðin komin í 13,2 millj. kr. Þá er ótalinn kostnaður vegna meðferðar á sjúkrahúsi, endurhæfingar og mögulegs bótaréttar. Það sé síst ofmat að reikna með að kostnaður atvinnulífsins vegna hálkuhelgarinnar miklu sé 30 milljónir króna.

Flensutíminn að renna upp

„Það koma reglulega svona álagstímar hjá okkur á bráðadeildinni og við gerum einfaldlega ráð fyrir þeim í okkar starfsemi. Það má nánast stilla klukkuna sína eftir því að um ellefuleytið á gamlárskvöld fer fólk sem hlotið hefur augnskaða af völdum flugelda að flykkjast hingað. Á vorin koma svo hingað í miklum mæli tilvik þar sem börn og unglingar sem hafa verið að leika sér í trampólíni slasast. Svo þekkjum við líka á sumrin að 17. júní er mikill slysadagur. Þá eru margir í bænum að skemmta sér og verða fyrir einhverju hnjaski og verða að leita hingað. Þetta er nánast föst rútína og við getum nánast mannað deildina í samræmi við þetta,“ segir Elísabet og bætir við að nú sé fensutíminn sem hún kallar svo að renna upp og honum fylgi oft álag á bráðadeildum Landspítalans. Auðvitað sinni heilsugæslan flensutilvikunum að mestu leyti; en margir leiti þó á bráðadeild vegna skæðrar lungnabólgu og annarra alvarlegra veikinda sem rekja má beint til umgangspesta vetrarins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is