Hjólhestur frá árinu 1887

Rax Ragnar Axelsson

Íslenski fjallahjólaklúbburinn heldur úti vefsíðunni fjallahjolaklubburinn.is en þar segir að klúbburinn sé fyrir alla þá sem noti reiðhjól sem samgöngutæki. Á síðunni er að finna margvíslegar upplýsingar er varðar hjólreiðar og þar eru einnig allar uppákomur klúbbsins auglýstar.

Meðal þess sem finna má á vefsíðunni er grein um sögu reiðhjólsins á Íslandi eftir Óskar Dýrmund Ólafsson. Þar segir meðal annars svo;

„Fyrstu fregnir af reiðhjólum sem vitað er til að hafi birst hérlendis á prenti eru þegar orðið hjólhestur er notað í grein um „Atgervi kvenna“ árið 1887 í Fjallkonunni. Í greininni eru rök færð fyrir því að þrátt fyrir allt þá geti konan nú ýmislegt og jafnvel í sumum tilvikum skarað fram úr karlmönnum. „Ein kona hefir nú á dögum náð að skara svo fram úr í stærðfræði, að enginn karlmaður er henni fremri. Önnur hefir á einum degi ferðazt 160 enskar mílur á hjólhesti (Bicycle).“ Hér er verið að vitna til kvenna erlendis en víða voru hjólreiðar orðnar að tískuæði þar.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is