Svona komst hún aftur í form

Mynd 1 af 7
Beyonce. DANNY MOLOSHOK

Beyoncé stundar nú líkamsrækt af kappi til að komast sem allra fyrst aftur í form eftir barnsburðinn en dóttir hennar og Jay-Z, Blue Ivy, fæddist 7. janúar. Söngkonan vill ná af sér um 20 kílóum hratt og örugglega og til að ná sem bestum árangri hefur hún fengið einkaþjálfarann til að flytja inn tímabundið.

Líkamsræktarsérfræðingurinn Marco Borges dvelur nú á heimili tónlistarparsins í Hamptons og er búinn að setja saman nákvæmt æfingaplan fyrir söngkonuna, að sögn heimildamanns tímaritsins Star. Vakna þau saman kl. 5 á morgnana og æfa í tvo tíma og hittast svo aftur seinnipartinn klukkan 5 og æfa þá aftur í tvo tíma. Æfingaplanið samanstendur af brennslu, pílates, jóga og dansi.

Beyoncé hefur sömuleiðis tekið mataræðið í gegn og fylgir nákvæmlega matseðlinum sem Borges hefur sett saman fyrir hana. Borðar söngkonan sex litlar en mjög próteinríkar máltíðir á dag; drekkur próteindrykki, borðar eggjahrærur gerðar út hvítunni einni, maular ferskan ananas og drekkur mikið af ísköldu vatni. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og á nýlegum myndum af söngkonunni lítur hún stórkostlega út.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is