Þríþraut: Járnkarlar í Flórída

Mynd 1 af 2
Í hálfum járnkarli þarf meðal annars að hjóla heila 90 kílómetra. mbl.is

Keppt var í svokölluðum járnkarli, þar sem hlaupið er, synt og hjólað, í Flórída nú um helgina. Þar fór fram keppnin Ironman Panama 70.3 en hún er haldin víða um Bandaríkin og einnig í fleiri löndum.

Þetta er í níunda sinn sem keppnin er haldin og fór hún að þessu sinni fram í Panama. Skráning hófst í keppnina í nóvember á síðasta ári og varð fullt í hana á aðeins 16 mínútum. Keppnin er sett saman af 1.9 km sundi, 90 km hjólaferð og 21.1 km hlaupi. Hér er því engin smá þríþraut á ferð og ekki hver sem er sem tekur þátt í slíkri keppni. Þríþraut hefur orðið sífellt vinsælli síðastliðin ár en hún þróaðist úr tískufyrirbrigði í viðurkennda íþrótt þegar hún var tekin inn á Ólympíuleikana í Syndey árið 2000. Þar var keppt í svokallaðri Ólympískri þríþraut sem felur í sér 1,5 km sund, 40 km hjólreiðar og 10 km hlaup.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is