Teáhugi sameinar fjölskylduna

Mynd 1 af 2
Ingibjörg J. Friðbertsdóttir, sem upphaflega fékk þá hugmynd að kynna teheiminn betur fyrir Íslendingum. Sérstaklega þá stemningu sem skapast við að skipta um gír og hella upp á tebolla í rólegheitum. Hún fékk eiginmann sinn Árna, börn þeirra Andra, Ölmu og Hlín Árnabörn, og tengdasoninn Guðberg Björnsson í lið með sér og út frá teáhuga þeirra varð Tefélagið til. Sigurgeir Sigurðsson
Morgunblaðið María Ólafsdóttir maria@mbl.is

Segja má að fjölskylda ein í Vesturbænum hafi komið af stað dálítilli tebyltingu. Saman stofnaði hún Tefélagið en í það getur fólk skráð sig og fengið nýtt te inn um lúguna í hverjum mánuði til að smakka. Fjölskylduna langar að kynna temenningu enn frekar fyrir Íslendingum og kenna þeim að njóta teheimsins út í ystu æsar. Langtímadraumurinn er síðan að opna alvörutehús einn daginn.

Tefélagið var stofnað af fjölskyldu einni í Vesturbæ Reykjavíkur sem öll er mikið teáhugafólk. Fjölskyldumeðlimir hafa flestir búið í Danmörku og kynnst þar skemmtilegum tesiðum. Þau vonast til að breiða út boðskapinn um te enn frekar á Íslandi og stofna alvörutehús einn daginn.

Hellt upp á í rólegheitunum

Vel er tekið á móti blaðamanni á hráslagalegum eftirmiðdegi með rjúkandi hvítu tei með ávaxtabragði og ekta bresku temeðlæti, brauði með „lemon curd“ (sítrónuhlaupi) og rjómaosti (að íslenskum sið). Það var móðirin, Ingibjörg J. Friðbertsdóttir, sem upphaflega fékk þá hugmynd að kynna teheiminn betur fyrir Íslendingum. Sérstaklega þá stemningu sem skapast við að skipta um gír og hella upp á tebolla í rólegheitum. Hún fékk eiginmann sinn Árna, börn þeirra Andra, Ölmu og Hlín Árnabörn, og tengdasoninn Guðberg Björnsson í lið með sér og út frá teáhuga þeirra varð Tefélagið til. Markmið félagsins er fyrst og fremst að miðla upplýsingum um gæðate og gera fólki kleift að drekka gott te. Fólk skráir sig í félagið og fær þá heimsent mánaðarlega te til að smakka. Með teinu fylgja allar helstu upplýsingar um það, til að mynda stöðutíminn. Það er að segja hversu lengi eigi að láta vatnið bíða á telaufunum en slíkt skiptir miklu máli upp á bragðið að gera.

Draumur að opna testofu

„Þetta er nú bara svona fjölskylduverkefni. Við erum miklir teaðdáendur þótt við séum engir sérfræðingar og áhuginn hefur vaxið jafnt og þétt. Við ákváðum að byrja á því að safna saman áhugafólki í Tefélagið en í framtíðinni langar okkur að opna alvörutestofu þar sem hægt er að setjast inn og fá sér skonsur, sítrónuhlaup og te. Á slíkum stöðum í Danmörku er bannað að koma inn með kaffi. Meira að segja þótt það sé í poka,“ segir Andri og bætir við að líklegast yrði erfitt að framfylgja þessu hér enda Íslendingar almennt meiri kaffineytendur en te.

„Fyrsta sendingin fór út til félaga í september og nú er búið að senda út sex sendingar. Í heilsubylgju nútímans er mælt með að drekka te og sem hjúkrunarfræðingar hugsum við mæðgur báðar heilsutengt. Okkur langar því líka að opna augu fólks fyrir hollustu tesins um leið og við viljum auka áhuga fólks,“ segir Ingibjörg. Hlín bætir við að einn félagi Tefélagsins hafi sagt að það væri yndislegt að koma heim einu sinni í mánuði því þá angaði anddyrið af nýju tei. Þau mæla með því að fólk þefi og skoði teið og helli því síðan yfir í bréfpoka sem fylgir með í kassanum.

Teáhugafólk leynist víða

Hópurinn renndi blint í sjóinn þegar facebooksíða Tefélagsins var stofnuð en hún á sér nú nærri 900 aðdáendur. Teáhugafólk leynist vissulega víða hérlendis og gefst því nú góður vettvangur til að skiptast á skoðunum og upplýsingum í gegnum félagið. Með þessu segja stofnendurnir að þau læri líka sífellt meira. Andri segir gaman að finna fyrir áhuga fólks og fá viðbrögð við því tei sem sent er út. Góð viðbrögð smiti líka út frá sér til fleiri. Eins hafa ýmsir óskað eftir samstarfi við Tefélagið, meðal annars handverkskona sem prjónar fallegar tehettur. Tefélagið er með umboðsaðila í Danmörku en teið hefur einnig komið frá Bandaríkjunum og víðar að. Reynt er að hafa það fjölbreytt; allt frá mjúku hvítu tei yfir í dökkt, svart enskt te og allt þar á milli eins og hreint grænt te og teblöndur.

Te á matseðlinum

Segja má að Tefélagið sé nú í dálítilli útrás en á Snaps Bistro, nýjum veitingastað í miðbænum, verður te frá félaginu á matseðli. Það verður haft í glærum krukkum þannig að fólk geti séð það og lyktað af því og lært dálítið um uppáhellinguna um leið. Andri segir það verða spennandi að sjá hvernig þetta kemur út. Íslendingar kunni almennt frekar að panta sér kaffi en það hafi þróast út frá instant-kaffi yfir í espresso og kaffi með sírópi og öðru slíku. Þetta hafi þróast með árunum og svipað verði það líklegast með teið. Teheimurinn sé vissulega ekki nýr en hann þurfi sinn tíma hér á landi til að taka vaxtarkipp. Fyrir áhugsama má skoða vefsíðu Tefélagsins, tefelagid.is, og slást í hópinn á Facebook undir Tefélagið.

WHITE TEMPLE

Létt og mjúkt hvítt te

Í tepakka hvers mánaðar er að finna te til að smakka og helstu upplýsingar um það. Blaðamaður fékk að smakka White temple sem er létt og mjúkt hvítt te blandað framandi ávöxtum, m.a. mangó, papaja, appelsínum, jarðarberjum og ananas. Teið hefur mjúkan keim og sterkan ávaxtailm. Koffíninnihald er lítið og vatnshitinn skal vera 70-80°C og stöðutíminn 8-10 mínútur. Fylgdust tefélagar vel með tímanum við uppáhellinguna enda skiptir máli upp á bragðið að hafa tímann hárnákvæman. Annars getur bragðið breyst og teið jafnvel orðið vont.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is