Krakkarnir halda Klum í formi
Heidi Klum hefur í nógu að snúast en hún á fjögur ung börn með tónlistarmanninum Seal. Parið tilkynnti nýlega að sjö ára hjónabandi þeirra væri lokið en hún virðist vera á góðum stað í lífinu, þrátt fyrir að sambandið við eiginmanninn sé runnið út í sandinn. Heldur fyrirsætan sér í formi með því að passa mataræðið, leika við börnin og viðra heimilishundana.
Í viðtali við tímaritið OK! segir Klum að börnin haldi henni við efnið; þau Leni sjö ára, Henry sex ára, Johan fimm ára og Lou tveggja ára. „Börnin mín sjá um að halda mér í góðu formi,“ segir fyrirsætan. „Mér finnst gaman að hoppa með þeim á trampolíninu á bak við húsið okkar og þess á milli förum við í góða göngutúra með hundana í almenningsgörðum. Þetta er mín líkamsþjálfun.“
Klum segist hugsa vel um mataræðið og borða hollan mat enda vill hún vera börnum sínum góð fyrirmynd. Drekkur hún mikið af nýkreistum ávaxtasafa og er sólgin í allt grænt grænmeti, ásamt gulrótum og appelsínum. Hún viðurkennir að hún leyfi sér stundum að slaka á í hollustunni og elskar franskar kartöflur og súkkulaði með heslihnetum.
























