Notaðu lækningajurtir við makaleit

Mynd 1 af 2
Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir.

Anna Rósa grasalæknir segir að vallhumall sé töfrajurt sem geti uppfyllt óskir okkar.

„Ef þú ert einn af þeim sem ekki átt maka og felldir tár annaðhvort á konudegi eða bóndadegi, þá er ég algjörlega með lausnina handa þér. Hún felst hvorki í sálfræðitímum né deiti á öldurhúsum. Forfeður okkar voru með mun einfaldari lausn á þessum vanda, þeir notuðu lækningajurtir við öllu!  

Ein af þeim jurtum sem var vinsæl í þessum tilgangi var vallhumall en hann vex alls staðar á landinu fyrir þá sem vilja tína hann í sumar og finna sér maka. Vallhumall þótti góður til að spá fyrir um örlög fólks og væri vallhumall settur undir kodda og eftirfarandi vísa höfð yfir átti það að kalla fram mynd af tilvonandi maka að morgni:

Thou pretty herb of Venus’ tree,
   Thy true name it is yarrow;
Now who my bosom friend must be,
   Pray tell thou me to-morrow.

 (Úr Halliwell’s Popular Rhymes)

Eins var það trú manna að seyði af vallhumli notað til andlitsþvotta eyddi hrukkum og ef vallhumall væri í brúðarvendi tryggði það hamingju í sjö ár. Á miðöldum var hefð fyrir því að brúðhjón bæru jurtina á sér til að tryggja langt og farsælt ástarlíf.

Burtséð frá ágæti vallhumals við makaleit  þá er hann ákaflega fjölhæf lækningajurt sem á sér margra alda sögu í grasalækningum. Hann þykir t.d. góður til að stöðva blæðingar og græða sár, auka matarlyst og stöðva niðurgang. Eins er vallhumall afar gagnlegur gegn kvefi, hálsbólgu, flensu og hita og er líka notaður til að koma reglu á tíðablæðingar og við tíðaverkjum. Svo er hann einnig talinn geta lækkað blóðþrýsting, dregið úr bólgum og gigt ásamt því að vera vatnslosandi,“ segir Anna Rósa í pistli sínum

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is