Kolvetni góð fyrir heilann eftir æfingu

Skokkað yfir Kringlumýrarbraut. stækka

Skokkað yfir Kringlumýrarbraut. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Heilinn notar einstakar aðferðir sem eigin orkugjafi og orkujafnvægið nýtist ekki aðeins við þjálfun, heldur einnig fyrir minni og hugsun. Þá er kolvetni gott fyrir heilann eftir æfingu. Þetta eru meðal niðurstaðna nýlegrar rannsóknar japanskra vísindamanna við háskólann í Tskuba.

Bornir voru saman tveir hópar fullorðinna karlkyns rotta. Annar hópurinn var látinn hreyfa sig en hinn ekki og rannsakaðar voru birgðir glýkókens fyrir og eftir hreyfingu. Eftir hreyfingu fengu rotturnar æti og hvíld.

Vísindamennirnir komust einnig að því að glýkóken jókst í heila rotta sem fengu kolvetni strax eftir æfingu. Þeir vilja halda því fram að í tilfelli manneskju sem stundar líkamsþjálfun þar til hún er örmagna, gæti súkkulaðidrykkur eða banani verið það sem heilinn þarf.

Í mörg ár höfðu vísindamenn talið að heilinn, sem er afar „svangt“ líffæri, nýtti einungis glúkósa eða blóðsykur sem orkugjafa. Taugafrumur juku orku við líkamsþjálfun og Japanarnir þróuðu nýja aðferð til að finna út hversu mikið glýkógen varð eftir í stjörnufrumum (sem stjórna efnaskiptum taugafrumna) eða hversu mikið af því hafði verið notað.

Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar á vef New York Times og þar vísað í febrúarhefti tímaritsins The Journal of Physiology.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Þrjú kíló fuku á tveimur vikum

00:11 Ritstjóri Elle segir að blandarinn frá Vitamix hafi hjálpað sér að breyta um lífsstíl og fá glóandi húð og glansandi hár.   Meira »

50% bursta ekki tennurnar á sumrin

Ágústa Johnson.
24.5. Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða, hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missirðu fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp. Meira »

Var hætt komin vegna ofþyngdar

Janet Jackson á sviði.
í fyrradag Janet Jackson var hætt komin vegna ofþyngdar og ákvað að snúa við blaðinu.  Meira »

Þambar volgt vatn með sítrónu

Britney Spears æfir af kappi.
24.5. Britney Spears undirbýr sig af kappi fyrir hlutverk dómara í X Factor.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is