Ef þú ert orðinn þreytt/ur á því að lesa um enn einn megrunarkúrinn eða þreytt/ur á því að einn segi eitt og annar annað varðandi mataræði er þetta listinn fyrir þig.
Vefsíðan Mind Body Green nefnir nokkur atriði sem segja okkur hvað þarf til þess að mataræðið sé fjölbreytt og heilbrigt.
1. Þú getur borðað allt sem þú vilt. Ef þú þyrftir að velja á milli skammtastærða og þess að borða uppáhaldsmatinn þinn ættirðu að velja uppáhaldsmatinn þinn. Það er í lagi að fá sér það sem manni þykir gott ef maður gætir hófs. Ekki hafa heldur skammtastærðirnar of stórar í hverri máltíð.
2. Kannaðu innihald matvaranna. Þú vilt ekki láta hvað sem er ofan í þig; skoðaðu innihaldslýsinguna vel.
3. Kaloríur skipta máli en næringargildið skiptir enn meira máli. Líkaminn þarfnast kalóría úr kolvetni, próteini, fitu og grænmeti. Vertu viss um að fá næringu úr öllum þessum fjórum flokkum. Fjölbreytt mataræði er lykillinn að heilsusamlegu lífi.
4. Borðaðu oft. Ef þú borðar oft borðarðu minna í einu sem er betra fyrir líkamann. Best er að borða á þriggja tíma fresti og borða litlar máltíðir.
5. Taktu aðeins þau bætiefni sem þú færð ekki úr fæðunni. Ekki nota bætiefni, svo sem vítamín, bara vegna þess að einhver segir að það sé hollt fyrir þig. Nauðsynlegt er að taka aðeins þau bætiefni sem líkaminn nær ekki úr fæðunni og ekki taka of mikið af þeim.
6. Drekktu jafnmikið og þú borðar. Fæða og vökvi verða að vera í jöfnu magni. Sumir gleyma að drekka nóg af vatni en nauðsynlegt er að líkaminn fái nægan vökva.
7. Minntu þig á hvað þú borðaðir deginum áður. Ef þú getur ekki svarað spurningunni um hvað þú borðaðir daginn áður þarftu að huga betur að því hvað þú borðar. Prufaðu að halda matardagbók þar sem þú skráir niður það sem þú borðar.