Ertu að berjast við bit, kláða eða bólgur?

Guðrún Bergmann.
Guðrún Bergmann. Ljósmynd/Cenk Unver

„Þótt sólin hafi ekki hellt geislum sínum í miklum mæli yfir höfuðborgina hefur fólk víða um land og í sólarfríum erlendis væntanlega notið hennar. En sól og sumri fylgja oft skordýrabit og þótt hægt sé að bera á sig krem eða vökva, sem eiga að halda þeim í burtu, eru þau oft full af innihaldsefnum sem eru ekki sérlega góð fyrir líkamann. Flestum hefur reynst vel að taka inn B-vítamín til að halda skordýrum sem skilja eftir bit í fjarlægð. Dugi það ekki, eru til margar náttúrulegar leiðir til að takast á við bitin og bólgurnar og kláðann sem oft fylgir,“ segir Guðrún Bergmann í sínum nýjasta pistli. Hér fyrir neðan er listi yfir olíur, krem og matvörur sem hægt er að nota til þess að koma í veg fyrir bit, kláða eða bólgur. 

Ilmkjarnaolíur eins og tea tree, lavender og kókosolía búa allar yfir eiginleikum sem draga úr kláða, sársauka og bólgum. Tea tree-olían býr líka yfir sótthreinsandi eiginleikum, en þeir geta komið í veg fyrir sýkingar ef fólk klórar sig til blóðs.

Villimeyjar-kremin eru unnin úr íslenskum jurtum. Eitt þeirra, Vöðva- og liða-Galdur, er sérlega gott á skordýrabit og dregur ótrúlega fljótt úr kláða. Sára-Galdurinn er hins vegar frábær á sólbruna og hvers kyns skeinur sem börn eða fullorðnir kunna að fá.

Hunang hefur bólgueyðandi eiginleika og dregur úr kláða, svo það má bera á bit, ef þér er sama um svolítið klístur.

Sítrónu- eða límónusafi getur dregið verulega úr kláða og hefur einnig bakteríudrepandi áhrif. Gættu þess samt að ef þú berð safann á húðina máttu alls ekki láta sól skína á hana, því það getur valdið sólbruna.

Tannkrem, því í flestum tegundum tannkrema er eitthvað af mintu eða piparmintu og mentólefnin virka kælandi á húðina. Heilinn nemur þá tilfinningu fyrr en kláðatilfinninguna. Herpandi áhrif tannkremsins draga líka úr bólgum.

Kaldir tepokar draga vökvann út úr bitum og draga úr kláða og bólgum. Það má líka leggja einn ísmola á bit, því hann þrengir að blóðflæðinu og dregur úr kláða.

Edik eða eplaedik hefur lengi verið notað á bit og bruna í suðrænum löndum. Setja má smá á hvert bit. Ef um mörg bit er að ræða má setja tvo eða þrjá bolla af því út í baðvatn og liggja í því 10-15 mínútur.

Heimildir: Women's Health og Villimey

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál