Það er ekkert leyndarmál til

Kate Hudson hreyfir sig reglulega og borðar hollt. Það er …
Kate Hudson hreyfir sig reglulega og borðar hollt. Það er ,,leyndarmálið'' hennar. mbl.is/AFP

Leikkonan Kate Hudson er hraust og hefur tileinkað sér heilbrigðan lífstíl. Hún segir galdurinn vera linnulausa vinnu. Hún segir því miður enga töfralausn vera til.

„Þú verður að vinna af þér rassinn, það er eina leiðin. Og þú verður að borða réttu fæðuna,“ sagði Hudson í viðtali við Us Weekly aðspurð að því hvernig hún heldur sér í góðu formi.

„Það eru allir að leita að einhverju leyndarmáli en það er ekki til. Þú verður bara að stunda líkamsrækt.“

Hudson kveðst þó ekki beint stunda mikla hreyfingu heldur stundar hún hana af fullri samkvæmni. „Þú veist, maður verður bara að gera þetta því miður, eins og allt annað í lífinu,“ sagði Hudson sem er greinilega ekki yfir sig hrifin af líkamsrækt.

Kate Hudson (t.h) og móðir hennar, Goldie Hawn.
Kate Hudson (t.h) og móðir hennar, Goldie Hawn. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál