Húðfegrunarsjeik með lakkrísbragði

Lakkríssjeik með bee pollen.
Lakkríssjeik með bee pollen. Ljósmynd/Valdís Sigurgeirsdóttir

„Hér kemur uppskrift að mjög bragðgóðum próteinsjeik sem er eiginlega eins og nammi. Hann er einstakur að því leyti að hann inniheldur dagskammtinn af hinu frábæra Amino-kollageni frá Feel Iceland sem er svo gott fyrir liði, liðamót, húð, vöðva, bein og hár svo eitthvað sé nefnt en hann inniheldur einnig danskt mysuprótein frá Organic Nature sem kemur frá grasfóðruðum kúm. Það er ekki casein eða mjólkurprótein í því svo það er óhætt að taka fyrir þá sem eru með mjólkuróþol. Þetta mysuprótein kemur í nokkrum bragðtegundum og við prófuðum að nota lakkrísbragð með kakóduftinu sem kom alveg einstaklega vel út. Ég hef aldrei áður prótað prótein með lakkrísbragði enda hefur mér ekki fundist það hljóma vel. Ef þið notið avocado kemur auðvitað bragð af því og þá þykknar hann töluvert en það er ekki nauðsynlegt að hafa það með, bara ef ykkur líkar það betur,“ segir Valdís Sigurgeirsdóttir flugfreyja og matarbloggari á ljómandi.is.

3 dl haframjólk

2 msk Amino-kollagen

2 msk mysuprótein með lakkrísbragði

1 msk hreint kakóduft

1 lítil lárpera

1-2 dropar af karamellustevíu

smá salt

klaki og jafnvel smá bee pollen fyrir augað og kroppinn

Allt sett í blandara.

Girnilegur kollegen-drykkur.
Girnilegur kollegen-drykkur. Ljósmynd/Valdís Sigurgeirsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál