Ætlaði alltaf að byrja „á morgun“

Sigríður Ásta Hilmarsdóttir.
Sigríður Ásta Hilmarsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

„Í lok fyrstu vikunnar er mér efst í huga af hverju ég byrjaði ekki fyrr. Allir þessir dagar sem ég ætlaði að byrja á morgun eða byrja eftir helgi eða byrja í næsta mánuði liðu án þess að nokkuð gerðist. Ég ætlaði líka að hætta hinu og þessu í sambandi við mataræði á morgun, eftir helgi eða í næsta mánuði en ekkert varð úr því. Ég fann alltaf afsökun fyrir því að fresta öllu. Verandi móðir tveggja ungra barna, sjö mánaða og að verða þriggja ára, er erfitt að finna tíma til að hlaupa frá í ræktina og brasa við að elda hollt. Það er miklu auðveldara að skella pylsum í pott eða borgara á pönnuna og frönskum í ofninn en að elda frá grunni,“ segir Sigríður Ásta Hilmarsdóttir í sínum fyrsta pistli en hún er ein af fimm sem taka þátt í heilsuferðalagi Smartlands og Hreyfingar. 

„Í upphafi vikunnar tók ég ákvörðun út frá þessu um að það eru engar afsakanir lengur. Það er ekkert mál að skera niður grænmeti og henda kjúklingabringum í ofninn. Jafnframt ákvað ég að kalla þetta ekki megrun eins og ég hef alltaf gert heldur lífsstílsbreytingu. Ef stelpurnar mínar eiga erfiðan dag eða nótt og ég er þreytt eða dagurinn er þétt skipaður af útréttingum þá mæti ég samt á æfingu en hef hana bara örlítið styttri en venjulega æfingu.

Út frá þessum viðhorfsbreytingum náði ég að mæta í ræktina þessa fjóra daga sem lífsstílsbreytingin hefur staðið yfir. Ég þurfti að mæta einn daginn á mjög stutta æfingu vegna þess að stelpan mín var veik en ég bætti það upp með því að fara á tvær æfingar í dag. Ef ég sé fram á að hafa lítinn tíma í kringum kvöldmatinn þá undirbý ég matinn fyrr um daginn. Í kvöld t.d. var ég á æfingu til klukkan 18.15 sem þýðir að ég var ekki komin heim fyrr en rétt fyrir 19 og börnin fara í rúmið um klukkan 20.30. Ég steikti kjúkling áður en ég fór í ræktina og hitaði hann svo upp fyrir okkur þegar ég kom heim. Þetta fyrirkomulag krefst skipulags en verður allt fyrirhafnarinnar virði á endanum. Þetta er ekki dagsferð heldur langferð!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál