Hvað er hægt að borða í stað sykurs?

Sigrún Lóa Sigurgeirsdóttir.
Sigrún Lóa Sigurgeirsdóttir. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Þá erum við stelpurnar í átakinu hálfnaðar. Þetta ferðalag hófst á því að taka ákvörðun um breyttan lífsstíl og við ákváðum einnig að sniðganga allan sykur. Það er nú meira mál en maður heldur því sykur leynist víða í allri fæðu. Fyrstu 2 vikurnar voru hreint helvíti fyrir mig. Bæði hætti ég að borða sykur og drekka gosdrykki þannig að ég átti eiginlega bara hrikalega bágt. Á þriðju viku fór ég að átta mig á því hve mikið betur mér leið. Líkaminn var ekki eins stífur og stirður, bólgur höfðu minnkað og bjúgur sem oft sótti á mig var algjörlega horfinn,“ segir Sigrún Lóa Sigurgeirsdóttir sem tekur þátt í heilsuferðalagi Smartlands Mörtu Maríu og Hreyfingar.

Hún segist vera alsæl við þessa ákvörðun.

„Það er hægt að bæta mörgu öðru góðu inn fyrir sykurát og nammipúkinn minn er gjörsamlega týndur og ég finn hann ekki þó ég reyni. Ég á mér uppáhalds „nammi“ sem ég kaupi og varðveiti vel og enginn fær nema ég. Lífrænu döðlurnar hjá Gló eru nammið mitt, þegar ég uppgötvaði þessa dásemd varð ég sátt. Ég fer á föstudögum og kaupi mér laugardagsnammið mitt 3 stk. döðlur í brúnum bréfpoka og er eins og krakki í sælgætisbúð. Harðfiskurinn er líka nammið mitt og svo eru ávextir allt í einu orðnir svo góðir. Nammikaup á heimilinu hafa algjörlega stöðvast og gosdrykkir eru keyptir spari fyrir fjölskyldumeðlimi. Þar sem ég er innkaupastjóri heimilisins þá er innihald ískápssins orðið mun heilsusamlegra fyrir alla á heimilinu og enginn kvartar, sem kemur mér á óvart. Allir eru tilbúnir að prufa nýtt fæði, skipta út kartöflum fyrir sætar kartöflur, bygg í stað hrísgrjóna, hollt brauð í stað hveitibrauðs og sykurlaust álegg í stað þess sem er stútfullt af sykur. Já álegg inniheldur nefnilega sykur í flestum tilfellum. Núna er ég vongóð um að næstu 5 vikur verði bara algjör sæla. Ég finn að ég er að styrkjast og allt að verða auðveldara í ræktinni, kílóin hverfa og sólin hækkar á lofti - hvað gæti verið betra?“

HÉR er hægt að lesa blogg Sigrúnar Lóu.

Sigrún Lóa Sigurgeirsdóttir.
Sigrún Lóa Sigurgeirsdóttir. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál