Þessi hefur borðað ofurfæðu í 20 ár

Hin 43 ára Tipper Lewis hefur lítið sem ekkert breyst …
Hin 43 ára Tipper Lewis hefur lítið sem ekkert breyst á seinustu 13 árum. dailymail.co.uk

Hin 43 ára Tipper Lewis hefur borðað svokallaða ofurfæðu í um 20 ár og hefur varla elst um einn dag síðan þá. Mataræði hennar samanstendur meðal annars af chia-fræjum, maca-dufti, hemp-fræjum, goji-berjum og spirulina. Hún kveðst hafa endalausa orku og ljómandi húð fyrir vikið. Og hún fer aldrei til læknis sem verður að teljast ansi merkilegt.

Fallegar fyrirsætur, leikkonur og söngkonur sjást reglulega neyta framandi ofurfæðu sem sumir vilja meina að sé bara einhver tískubóla en gæti verið að Lewis afsanni það? Hún hefur neytt ofurfæðu í tvo áratugi og lítur einstaklega vel út og ég er fantagóðu formi.

Lewis varð „vegan“ þegar hún var 18 ára og síðan þá hefur hún kynnt sér mátt jurta og plantna. „Ég neytti ofurfæðu fyrir 20 árum síðan og þá var þetta klárlega ekki í tísku,“ sagði Lewis í viðtali við Femail. „Fólk gerði grín af mér fyrir að vera með flösku fulla af grænum vökva á skrifborðinu mínu.“

Lewis óskar þess að allt þetta fræga fólk sem neytir ofurfæðu muni veita öðrum innblástur til að gera slíkt hið sama. Lewis vill meira að segja sjá börn borða ofurfæðu. „Það er hræðilegt að sjá þau [börnin] borða sykruð morgunverðastykki á leiðinni í skólann.“

Tipper Lewis hefur drukkið grænadrykki í tvo áratugi.
Tipper Lewis hefur drukkið grænadrykki í tvo áratugi. dailymail.co.uk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál