Einn frægasti heilsukokkurinn á leið til Íslands

Colleen Cackowski hráfæðiskokkur.
Colleen Cackowski hráfæðiskokkur.

„Við Colleen eigum ýmislegt sameiginlegt og síðan hvor okkar sérkenni,“ segir Solla Eiríksdóttir þegar hún er spurð um hráfæðiskokkinn Colleen Cackowski  sem er á leið til Íslands til að kenna Íslendingum að matbúa hráfæðisrétti á Gló. 

„Við byrjuðum báðar í makróbíótík og fórum síðan yfir í hráfæði. Við stunduðum báðar nám við sama hráfæðiskólann í Kaliforníu og höfum báðar unnið með David Wolfe. Á meðan ég hef verið að reka veitingastaði síðastliðin 20 ár og búa til uppskriftir fyrir staðina mína hefur hún verið freelance. Hún varð til dæmis eftir á hráfæðisskólanum og var hægri hönd skólastjórans í tvö ár. Hún hefur unnið sem einkakokkur fyrir fullt af fólki, haldið námskeið, skipulagt stórar uppákomur í heilsuheiminum og starfað náið með Davids Wolfe í fjölda ára og hannað með honum uppskriftir og fleira. Hún er mikið menntuð í jurtalækningum og hennar sérsvið er að búa til alls konar drykki og seyði úr jurtum og plöntum samkvæmt gömlum kínverskum og ayurvedískum hefðum,“ segir Solla.

Á námskeiðinu ætlar Colleen Cackowski að kenna matreiðslu á gómsætum hráfæðisréttum og grænmetisréttum sem eiga það sameiginlegt að vera með lágan sykurstuðul.

Sykurneysla í heiminum í dag hefur tvöfaldast síðustu 35 ár og er þekktur valdur að mörgum sjúkdómum. Cackowski ætlar að leiða gesti námskeiðsins í sannleikann um það hvernig hægt er að borða hollan og góðan mat án þess að leggja heilsuna að veði. Á námskeiðinu kennir hún nemendum að gera holla eftirrétti, millimál og mat úr besta fáanlega hráefni og að sjálfsögðu er allt sykurlaust. Auk þess lumar hún á mörgum góðum trixum til að vinna á sykurlöngun og hjálpa fólki að ná markmiðum sínum. Námskeiðið fer fram á Gló hinn 6. júní milli 12 og 15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál