Synir Hófíar Karlsdóttur unnu í WOW cyclothon

Anton Örn Elfarsson, Davíð Þór Sigurðsson, Kári Brynjólfsson og Rúnar …
Anton Örn Elfarsson, Davíð Þór Sigurðsson, Kári Brynjólfsson og Rúnar Karl Elfarsson skipa liðið Eldfljótir með Ergo.

Tveir synir Hólmfríðar Karlsdóttur alheimsfegurðardrottningar og leikskólakennara í Garðabæ voru liðsmenn í liðinu Eldfljótir með Ergo sem sigraði í hjólakeppninni WOW Cyclothon í sínum flokki.

Faðir þeirra, Elfar Rúnarsson, var annar af bílstjórum liðsins en hann er sjálfur mjög öflugur hjólreiðamaður og í dúndurgóðu formi. Drengirnir hafa æft hjólreiðar og þykja ákaflega öflugir hjólamenn eins og árangurinn sagði til um.

Synir Hófíar og Elvars heita Anton Örn Elfarsson og Rúnar Karl Elfarsson. Hinir tveir eru ekki síður öflugir hjólreiðamenn en þeir heita heita Davíð Þór Sigurðsson og Kári Brynjólfsson.

Eymundur Sveinn Einarsson var hinn bílstjórinn í liðinu en hann er einn af kraftmestu endurskoðendum landsins.

HÉR er hægt að skoða síðuna þeirra á Facebook.

Langþráð sturta hjá Ergo

Hólmfríður Karlsdóttir í hópi aðdáenda.
Hólmfríður Karlsdóttir í hópi aðdáenda. Kristján Ari Einarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál