Morgungrautur minnkar kviðfituna

Morgungrauturinn hennar Júlíu.
Morgungrauturinn hennar Júlíu.

Júlía heilsumarkþjálfi lumar á fantagóðum ráðum til að minnka kviðfituna. Það er víst eitthvað sem við erum flest öll að reyna að vinna eitthvað með, en þó með misjöfnum árangri. Þótt við vitum flest öll trixin í bókinni er svo hryllilega erfitt að fara eftir öllum góðu ráðunum og taka upp betri siði. Þess vegna er sú vísa aldrei of oft kveðin.

Eitt af mínum helstu ráðum þegar hefja á lífsstílsbreytingu er að byrja að breyta morgunsiðum til hins betra. Góð byrjun gefur start að heilsusamlegum degi og sýna rannsóknir að það hjálpar til við þyngdarstjórnun, einbeitingu yfir daginn og jafnvel lækkun kólesteróls.

Nýlega deildi ég 5 fæðutegundum sem geta aukið brennslu og minnkað kviðfituna hér.

Heilir hafrar eru þar helst upp taldir. Rannsóknir (1, 2) sýna að það að neyta hafra getur hjálpað til við að léttast, þ.e.a.s ef þú ert ekki með glútenóþol að neinu leiti. Heilir hafrar eru í sínu upprunalegu formi á meðan haframjöl eins og flestir nota, er þegar hafrarnir hafa verið soðnir og flattir út. Þannig geymast þeir lengur og þú ert  fljótari að matreiða þá. Með smávægis undirbúningi er hægt að stytta eldunartíma með heilum höfrum eins og sjá má með uppskriftinni hér að neðan,“ segir Júlía í sínum nýjasta pistli:

Hér kemur hlýlegur og seðjandi morgungrautur með eitthvað af þeim 5 fæðutegundum sem hlýjar líkamann og kemur brennslu af stað. Ekki að minnast að hann bragðast dásamlega..

HLÝLEGUR HAFRAGRAUTUR MEÐ CHIA OG KANIL

½ bolli heilir hafrar (lagðir í bleyti yfir nótt)

1 bolli möndlumjólk/önnur hnetumjólk/vatn

1 tsk kanill

1/4 tsk cayenne pipar

3-4 dropar stevia

Hnífsoddur salt

Útá er bætt við

Chia fræ (lögð í bleyti)

¼ bolli niðurskorinn epli/banana (val)

1-2 msk niðurkornar pecan/valhnetur/möndlur (val)

  1. Leggðu hafra í bleyti yfir nótt. Daginn eftir máttu hreinsa hafrana.
  2. Bættu við hnetumjólk eða vatni og eldaðu Heila hafra í potti eins og þú myndir gera venjulega hafra en í 30 mín.
  3. Þegar tilbúið bættu við kanill, cayenne, salti, steviu og chia fræjum.

Til að flýta fyrir má elda hafrana að kvöldi í 1 mín við suðu, slökkva á hellunni og daginn eftir er þetta rétt hitað upp með örlítið meira af möndlumjólk/hnetumjólk ef þess er óskað.

Aðrar útfærslur:

  • Fyrir kakó graut bættu við 1 msk af lífrænu kakó dufti
  • Fyrir meira prótein bættu við 1-2 msk af hemp fræjum eða/og möndluflögum
  • Fyrir graskers- og þakkargjörðarútgáfu má bæta við 1/4 tsk múskat, 1/4 tsk negul, 1/4 tsk engifer

Grænt te var fimmta fæðutegundin sem getur aukið brennslu, því er upplagt að drekka góðan bolla af grænu te með.

Njóttu fyrir dásamlegan morgun.

Líkaðu svo við á facebook og deildu með vinum þínum fyrir léttari jól.

Júlía heilsumarkþjálfi hjálpar fólki að ná tökum á ofþyngdinni.
Júlía heilsumarkþjálfi hjálpar fólki að ná tökum á ofþyngdinni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál