Tíu mínútna kelp-núðlur

Setjið núðlurnar á litríkan disk til að gera réttinn girnilegri.
Setjið núðlurnar á litríkan disk til að gera réttinn girnilegri. mbl

Hráfæðiskokkurinn Kate Magic er rokkstjarna í heilsuheiminum. Hér deilir hún uppskrift af kelp-núðlum með lesendum Smartlands Mörtu Maríu. 

Uppskriftin er fyrir tvö eða einn mjög mjög svangan. Það tekur ekki nema tíu mínútur að útbúa réttinn. Það er þó mælt með því að rétturinn marinerist í tvær klukkustundir áður en hann er borðaður.  

170 g (1 packet) kelp-núðlur

100 g sveppir

1 rauð paprika

2 msk. tahini

60 ml ólífuolía

1 msk. tamari

1 msk. eplaedik

1 tsk. cordyceps eða annað sveppa extract (ef til)

1 tsk. hvítlauksduft

1 tsk. sumac eða annað heitt krydd eins og paprika eða cayenne-pipar

Byrjaðu á því að skera sveppina og paprikuna smátt og setja í stóra skál. Opnið kelp-núðlurnar og skolið þær vel og skerið síðan í sundur með tandurhreinum skærum. Þeim er blandað saman við grænmetið. 

Setjið ólífuolíu, tamari-sósu og eplaedik yfir hráefnið í skálinni. Hrærið sveppa extract, hvítlauk og sumac saman við. Setjið lok yfir og látið marinerast í tvo tíma – ef þú hefur tíma. 

Rétt áður en þú borðar réttinn skaltu setja tahini í litla skál og hella vökvanum af núðlunum í skálina. Þessu er hrært saman og þannig ertu búin/n að búa til sósu með rjómalagaðri áferð. Þessu er svo aftur hellt yfir núðlurnar áður en þær eru borðaðar.  

Kate Magic er á leið til Íslands þar sem hún verður með fimm daga hráfæðisnámskeið fyrir lengra komna. Námskeiðið fer fram á Gló. 

Kate Magic.
Kate Magic. mbl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál