Svona endast kryddjurtirnar lengur

„Um daginn fjallaði ég um þá æðislegu heilsuávinninga sem við fáum úr kryddjurtum þar á meðal sterkara ónæmiskerfi og minni bólgur og sagði svo frá hvernig ég planta þeim. Í dag langar mig að deila með þér hvernig ég geymi þær svo þær endist sem lengst og út í hvað ég nota þær.

Ég er mjög hrifin af heimagerðum (DIY) leiðum að hugsa um húðina og geyma matvæli. Til þess nota ég  gjarnan krukkur sem ég geymi í jógúrt, dressingar eða kryddjurtir,“ segir Júlía heilsumarkþjálfi í sínum nýjasta pistli: 

Hér koma leiðbeiningar skref fyrir skref til að láta kryddjurtirnar endast lengur:

Skref 1. Sótthreinsið krukkur.

Skref 2. Setjið botnfylli af vatni.

skref 3. Skolið og þerrið kryddjurtirnar. 

Skref 4. Setjið kryddjurtirnar í krukkurnar og geymið í ísskápshurðinni.

Kryddjurtir hafa æðislega hreinsunareiginleika og má nota út á salöt, í matargerðina, búa til úr þeim pestó og bæta út í sumarlega drykki. Ég nota þær mikið í uppskriftum í bókinni minni sem kemur út í september! Ef þú ert með mig á snapchat: lifdutilfulls veistu að ég get ekki beðið eftir að deila bókinni með þér!

Júlía heilsumarkþjálfi.
Júlía heilsumarkþjálfi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál