Biggest Loser keppandi lætur það vaða

Þorbjörg, keppandi í Biggest Loser Ísland, ætlar í fallhlífarstökk í …
Þorbjörg, keppandi í Biggest Loser Ísland, ætlar í fallhlífarstökk í dag.

Þor­björg Gísladóttir, keppandi The Biggest Loser Ísland, ætlar í fallhlífarstökk í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem hún prófar eitthvað í þessum dúr en hana hefur þó lengi dreymt um að fara í teygjustökk, það hefur þó þurft að bíða.

„Ég á bókað stökk hjá FFF-Dropzone- Hella kl 19:00 í kvöld ef veður leyfir,“ segir Þorbjörg, eða Tobba eins og hún er gjarnan kölluð. Tobba átti að fara í fallhlífarstökkið fyrir viku síðan en því var frestað fegna veðurs. 

„Við systurnar vorum eitthvað að ræða þetta stuttu eftir að ég kom heim af Ásbrú, sem var í nóvember í fyrra. Hún er búin að stökkva tvisvar og var að tala um að fara aftur núna í sumar og ég spurði hvort ég mætti ekki koma með. Henni fannst það tær snilld og þá var það ákveðið.“

„Ég hef ekki prófað neitt í þessum dúr áður en mig hefur alltaf langað i teygjustökk,“ útskýrir Tobba sem lét aldrei verða af teygjustökkinu sökum þess að hún er búin að fara í aðgerðir á hnjám. „Læknar ráðlögðu mér að fara ekki í teygjustökkið.“

Finnur ekki fyrir hræðslu

Tobba kveðst vera rosalega spennt fyrir fallhlífarstökkinu. „Ég finn enn sem komið er ekki fyrir hræðslu, mér finnst hálf óraunverulegt að þetta sé að gerast. En ég tek Gumma Ben á þetta: „ef þetta er draumur - aldrei vekja mig - aldrei vekja mig “

Systir Tobbu kemst því miður ekki með henni í stökkið að þessu sinni. „Nei, hún er búin að vera æfa fyrir hjólakeppnina Gullna hringinn og varð fyrir því  óhappi að „fljúga“ af hjólinu í gær. Hún flaug á hausinn og endaði upp á slysó en slapp sem betur  fer við beinbrot.“

Aðspurð hvað sé á döfinni kveðst Tobba ekki vera viss. „Ég  hef ekki sett mér fleiri áhættumarkmið í bili, en veit svo sem ekkert hverju ég get tekið upp á eftir stökkið í kvöld. Þetta snýst um að setja sér raunhæf markmið og takast  að framkvæma þau. Það eru þessir litlu persónulegu sigrar sem skipta svo miklu máli,“ segir Tobba að lokum.

Þorbjörg þurfti að bíða því fallhlífarstökkina var frestað vegna veðurs.
Þorbjörg þurfti að bíða því fallhlífarstökkina var frestað vegna veðurs. Skjáskot af Facebook.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál