Með örfáum hráefnum getur þú töfrað fram dásamlega góðan pina colada-sumarsorbet. Sorbetinn er tilvalinn í sumarpartíið og tekur afar stutta stund að undirbúa. Uppskriftina má finna á vef People en henni fylgir leiðbeiningarmyndband.
Innihald
4 bollar frosnir ananasbitar
¾ bolli kókósmjólk
¼ bolli sykur
2 matskeiðar romm eða appelsínusafi
Aðferð
Blandaðu öllum hráefnunum saman í blandara þar til áferðin verður silkimjúk og berðu fram. Einnig er hægt að undirbúa sorbetinn snemma og geyma í frysti þar til hann er borinn fram.