„Er að finna mína eigin leið“

Ásta Magnúsdóttir Njarðvík finnur lítið fyrir ofnæmiseinkennum eftir að hún …
Ásta Magnúsdóttir Njarðvík finnur lítið fyrir ofnæmiseinkennum eftir að hún breytti um mataræði. Ljósmynd/Freyja Gylfadóttir

Eftir að ég skipti um mataræði og fór að pæla í hollum mat er ofnæmið að hverfa. Ég fæ ekki útbrot lengur, jafnvel þótt ég svindli smá. Ég er með ofnæmi fyrir eggjum, jarðarberjum, sítrusávöxtum, kíví, ananas, rúgi, hveiti, fiski og rækjum,“ segir Ásta sem fékk útbrot í olnbogabótum, hnésbótum og lærunum, „og í andlitinu var það aðallega í kringum munninn. Þetta var alveg hræðilegt. Ég var með stórt sár á lærinu sem kom og fór í þrjú ár. Einu sinni var ég að setjast, svo það strekktist á húðinni, og þá rifnaði sárið upp og það var blóð út um allt. Þetta sár er horfið en ég er með ör eftir það.“

Ásta borðaði það sem hana langaði í og fékk sér bara ofnæmistöflur en þær gerðu ekkert gagn.

„Mig klæjaði mikið í útbrotin en annars leið mér ekki illa líkamlega af ofnæminu. Mér leið aðallega illa þegar fólk gerði athugasemdir við þau. Einu sinni fór ég út í búð og afgreiðslustrákurinn spurði hvað hefði komið fyrir andlitið á mér. Ég gleymi því aldrei. Þá ákvað ég að taka mataræðið í gegn.“

Avókadó er frábær fæða

„Undirstaðan í mataræðinu mínu núna er grænmeti, ávextir, hafragrautar og kaldir grautar. Ég borða chia-graut á hverjum morgni með ferskum ávöxtum.“

Á Instagram-síðu Ástu gæti flest flokkast sem vegan-matur eða hráfæði.

„Ég reyni að vera dugleg að borða vegan-fæði vegna dýra- og umhverfisverndarsjónarmiða. Ég borða vegan-fæði í morgunmat og hádegismat, en finnst erfiðara að finna mér kvöldmat. Mér finnst sniðugt að fá mér Buddha bowl. Þá setur maður saman í skál góða blöndu af salati, grænmeti, baunum, hnetum og fræjum. Ég nota gjarna kjúklingabaunir sem ég ofnrista með reyktu paprikukryddi, avókadó, rauðkál, grænkál, sem ég borða mjög mikið af, og soðnar sætar kartöflur. Þetta er ekki alveg hráfæði og ég er eiginlega ekki alveg vegan. Í rauninni er ég bara að finna mína eigin leið í mataræðinu og tek myndir af því,“ segir Ásta.

„Ég elska ristað brauð með avókadó og smá chili-pipar. Avókadó er í algjöru uppáhaldi hjá mér og ég á það alltaf. Það er frábær fæða. Það er t.d. hægt að nota í staðinn fyrir smjör. Ég bjó til þessar klassísku kókoskúlur og notaði avókadó í þær og það var mjög gott.“

Gaman að prófa ný hráefni

Ásta drekkur mikið af grænu tei og er sannfærð um að það hafi styrkt ónæmiskerfi hennar. „Græna teið er hollt að svo mörgu leyti. Kínverjar drekka þetta mikið, þess vegna byrjaði ég að drekka það,“ segir Ásta sem býr kærasta sínum, Aron Wei og fjölskyldu hans sem er öll frá Kína. Þar fær hún ekta kínverskan mat sem hefur farið betur í hana en venjulegur íslenskur heimilismatur.

„Tengdafjölskyldan hefur líka átt þátt í því að mér hafi batnað. Í raun borða ég þar aðallega vegan-fæði en þau borða mikið af grænmeti og nota mjólk mjög sjaldan, en ég er að reyna að hætta öllum mjólkurvörum. Ég er ekki með ofnæmi fyrir þeim, en finnst mér líða miklu betur ef ég sleppi þeim,“ segir Ásta sem kaupir sér kókosmjólk eða býr til sína eigin möndlumjólk.

„Mér finnst mjög gaman að prófa nýtt hráefni. Núna er ég að prófa mig áfram með kínóa sem er mjög prótínríkt korn. Sagt er að það sé glútenlaust korn sem teljist frekar vera fræ,“ segir Ásta sem er mjög ánægð með hvað mikið er flutt inn af spennandi hráefnum.

„Ég fæ alltaf æði fyrir einhverju skemmtilegu og núna er það acai-duft. Það passar bæði vel í eftirrétti og morgunverði. Ég hef sett það í smoothie og í hafragrautinn. Ég blandaði því líka saman við frosna banana, setti smá bláber og kókos út á. Það var ískalt og sjúklega gott, bara eins og að borða ís!“

Elskar að stílísera mat

Nýja mataræðið hennar Ástu hefur ekki bara gert hana heilbrigðari heldur líka skapað nýtt áhugamál hjá henni.

„Það gleður mig að finna upp á nýjum réttum og taka myndir af þeim. Fyrst þegar ég byrjaði að pósta myndum á Instagram-síðunni minni, astaeats, var ég bara að leika mér og þetta var líka leið fyrir mig til að skrásetja allt sem ég setti ofan í mig,“ útskýrir Ásta. „Núna elska ég að stílísera mat. Það er bara svo gaman að búa til fallegan mat og mynda hann. Ég vanda mig rosalega mikið, færi sama jarðarberið til og frá, allt verður að vera fullkomið,“ segir Ásta.

„Ég er með lítið stúdíó heima sem Wei kærastinn minn setti upp fyrir mig. Það eru ljós og hvítur kassi sem ég set matinn í. Svo má greyið Wei aldrei borða neitt í friði fyrir mér því ég er alltaf að fara að mynda það,“ segir Ásta og hlær.

„Það myndi líka gleðja mig mikið ef ég gæti hjálpað einhverjum með svipuð vandamál og ég. Fólk hefur verið að biðja mig um uppskriftirnar og þess vegna er ég að opna heimasíðuna www.astaeats.is. Ég ætla að setja uppskriftirnar þar inn og líka að blogga um hollan mat,“ segir Ásta sem vonast til að sem flestir kíki á síðurnar hennar fínu.

Ljósmynd/Instagram @astaeats

Kaldur grautur með höfrum og chia-fræjum

75 gr hafrar

2 msk. chia-fræ

1 msk. kókosmjöl

1 msk. fræ að eigin vali, t.d. hörfræ eða graskersfræ

125 ml kókosmjólk

Blandið öllum hráefnunum vel saman í skál eða glerkrukku, plastið yfir eða setjið lok á.

Setjið grautinn inn í ísskáp yfir nótt og borðið daginn eftir. Gott er að setja ávexti eða möndlur út á grautinn. Grauturinn endist í 3-4 daga inni í ísskáp.

Ljósmynd/Instagram @astaeats

Grænn smoothie

4 blöð grænkál

1 banani

1-2 dl frosnir mangóbitar

(eða frosnir ananasbitar)

1 msk. engifer

2-3 dl kókosvatn

Öllu blandað vel saman í blandara.

Ljósmynd/Instagram @astaeats

Acai-morgunverðarskál

2 frosnir bananar

2 dl fersk/frosin bláber

1 dl fersk/frosin jarðarber

4 tsk. acai-duft

Blandið saman í matvinnsluvél eða blandara þar til þykkri áferð er náð. Gott er að setja ferska ávexti eða kókosmjöl út í skálina.

Ljósmynd/Instagram @astaeats

Heimalöguð möndlumjólk

1 dl af möndlum, lagðar í bleyti í a.m.k.12 tíma.

3 dl af vatni.

4 döðlur

1 tsk. malaður kanill.

Hellið vatninu frá sem möndlurnar voru bleyttar í en það á ekki að nota í möndlumjólkina. Skolið möndlurnar vel með köldu vatni og setjið í blandara ásamt kanil, döðlum og vatni.

Blandið öllu vel saman í nokkrar mínútur eða þar til möndlurnar eru búnar að leysast upp. Hellið mjólkinni í gegnum þétt sigti eða ostaklút í stórt ílát og geymið svo í glerkrukku inni í ísskáp. Hægt er svo að nota hratið sem eftir verður í bakstur. Mjólkin endist í 2-3 daga inni í ísskáp.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál