„Hefur þú glímt við orkuleysi? Ég hef svo sannarlega upplifað það síðustu mánuði og tók eftir því að það hafði mikil áhrif á mig andlega og líkamlega,“ segir heilsumarkþjálfinn Sara Barðdal í sinni nýjustu færslu.
„Þetta getur skapað einhvers konar vítahring, því ef við komum ekki hlutunum í verk sem við erum vön, eða langar til þess að gera, getum við orðið leið eða svekkt yfir því, og þegar við verðum leið eru líkurnar enn minni að við komum okkur af stað aftur.“
Sara setti niður á blað nokkra hluti sem getur verið gagnlegt að prufa ef þú hefur upplifað slen undanfarið og verið fastur í vítahring orkuleysis:
Fáðu nægan svefn
Þetta segir sig nokkuð sjálft, en ég varð að nefna það því stundum getur þetta gleymst. Það er mælt með sjö og hálfum til níu tímum á nóttu fyrir fullorðna til þess að geta starfað eftir sinni bestu getu daginn eftir. Þetta er mismunandi eftir einstaklingnum og þú veist líklega best sjálf/ur hver þinn tími er.
Ef þú hefur verið að sofa færri tíma, settu svefn í forgang og slepptu því að horfa á „einn þátt í viðbót“ eða að „kíkja aðeins“ á Facebook á kvöldin.
Drekktu meira vatn
Ég hef komið inn á það áður að algengt sé að fólk rugli svengd við þorsta, og það sama getur átt við þreytu og orkuleysi. Ef líkaminn upplifir jafnvel bara smá vökvaskort getur það komið fram í orkuleysi.
Byrjaðu daginn á stóru vatnsglasi, því líkaminn þarf á því að halda eftir nóttina. Á næturnar verður ákveðin uppgufun á vökva úr líkamanum okkar og því er mikilvægt að byrja daginn strax á góðu nótunum. Gott getur verið að venja sig á að vera alltaf með vatnsbrúsa á ferðinni og vatnglas við höndina í vinnunni eða heima við.
Passaðu að fá næringuna sem þú þarft
Lykillinn er að halda blóðsykrinum jöfnum yfir daginn, slepptu því hvíta hveitinu og sykrinum alveg. Borðaðu meira af grænmeti og ávöxtum því þeir innihalda mikið af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum sem líkaminn þarf til þess að starfa eftir sinni bestu getu.
Ekki vera hrædd við kolvetni. Kolvetni eru ekki slæm ef þau koma úr góðum fæðutegundum.
Einnig gæti aukin inntaka á magnesíum hjálpað, en steinefnið kemur að rúmlega 300 lífefnafræðilegum viðbrögðum í líkama okkar, meðal annars því að brjóta niður glúkósa og breyta í orku. Ef líkamann skortir magnesíum getur orkan minnkað.
Ég mæli alltaf með að taka inn gott fjölvítamín daglega til þess að tryggja inntöku á helstu vítamínum og steinefnum sem líkaminn þarfnast.
Minnkaðu kaffið
Ef þú ert mikil kaffimanneskja, og ert að drekka meira en þrjá til fjóra bolla á dag, gæti verið gott fyrir þig að reyna að trappa þig niður. Þetta segir mér að þú sért háð/ur koffíninu til þess að halda orkunni þinni uppi. Við viljum ekki að líkaminn sé háður örvandi efni til þess að komast í gegnum daginn, því þegar þú ert að uppfylla allar hans þarfir á hann ekki að þurfa á öllum þessum bollum að halda.
Ég er ekki að segja að þú eigir endilega að taka það alfarið út, ekki misskilja. Ég elska að fá mér einn góðan bolla fyrir hádegi (sérstaklega áður en ég hreyfi mig), en ég vil hins vegar sækja mína orkuuppsprettu annars staðar frá og held mig því í einum bolla, topp tveimur á dag.
Ekki sleppa máltíðum
Rannsókn sem birtist í tímaritinu Nutritional Health sagði frá því að þegar fólk sleppti máltíðum yfir daginn upplifði það meira orkuleysi seinnipartinn.
Einnig hafa fleiri rannsóknir bent til þess að mikilvægt sé að byrja daginn á góðum morgunmat og fólk sem gerir það upplifir meiri orku yfir daginn. Við erum þó öll misjöfn og maður þarf að finna það sem hentar sínum líkama.
Ef þú finnur að þú sért að detta niður í orku vertu tilbúin/n með gott snarl til að grípa í. Prótein, fita og trefjar hjálpa blóðsykrinum að haldast jöfnum lengur, prófaðu að blanda saman hnetumixi sem inniheldur til dæmis kasjúhnetur, möndlur, hempfræ, kókosflögur, sólblómafræ og jafnvel nokkra mola af gæða dökku súkkulaði.
Hreyfðu þig meira
Fleiri fleiri rannsóknir sýna það að hreyfing eykur orku þína. Ef þú vinnur á skrifstofu, passaðu að standa reglulega upp og labba aðeins um eða teygja úr þér. Einnig getur verið gott að taka stutta göngu í hádeginu, þú munt koma endurnærðari til baka.
Ef þú hefur lítinn tíma til þess að fara í líkamsrækt og langar til þess að prófa kröftugar og stuttar heimaæfingar sem auka orkuna getur þú náð í ókeypis vikuprógramm hér.
Ég vona að þessi hollráð geti nýst þér.
Sara Barðdal,
ÍAK einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi