4 leiðir til að draga úr hrotum

Það getur verið bölvað vesen þegar betri helmingurinn hrýtur.
Það getur verið bölvað vesen þegar betri helmingurinn hrýtur. Ljósmynd / Getty Images

Það getur verið lýjandi að eiga maka sem hrýtur, enda góður nætursvefn nauðsynlegur.

Margir þekkja það að dangla í betri helminginn þegar hann hefur upp raust sína á nóttunni, en það leysir svo sem engan vanda.

Það eru þó ýmsar leiðir færar sem vert er að prufa, en heilsuvefurinn Prevention tók saman nokkur ráð.

Hugaðu að heilsunni
Einstaklingar sem hrjóta eru í mörgum tilfellum í yfirþyngd, þó að þetta sé alls ekki algilt. Þetta verður gjarnan til þess að öndunarvegur þeirra þrengist, sem getur orsakað hrotur. Það er því gott ráð að huga betur að heilsunni og reyna að léttast um nokkur kíló ef hrotur eru farnar að gera vart við sig.

Drekktu nóg vatn
Gott er að venja sig á að drekka nægt vatn yfir daginn til þess að koma í veg fyrir að hálsinn þorni á nóttunni.

Passaðu upp á mataræðið
Ekki er gott að borða seint á kvöldin, áður en haldið er í háttinn. Þá er einnig gott að takmarka neyslu á mjólkurvörum þar sem þær eiga til að auka myndun slíms, sem síðan getur þrengt öndunarveginn og valdið hrotum.

Settu þig í stellingar
Þeir sem sofa á hliðinni hrjóta mun minna heldur en þeir sem sofa á bakinu eða maganum.

Þá er nú betra að sofa í sátt og samlyndi, …
Þá er nú betra að sofa í sátt og samlyndi, án alls hávaða. Ljósmynd / Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál