Eyja Bryngeirsdóttir er 25 kg þyngri í dag en fyrir tveimur árum. Þetta á sér allt eðlilegar skýringar en nú ætlar hún að breyta til. Laga mataræði sitt og byrja að æfa að kappi.
Hún er ein af þeim fjórum sem tekur þátt í Lífsstílsbreytingu Smartlands og Sporthússins. Lilja Ingvadóttir einkaþjálfari í Sporthúsinu heldur utan um stelpurnar og ætlar að hjálpa þeim að ná markmiðum sínum. Næstu 11 vikur munum við fylgjast með stelpunum og afrekum þeirra.