Er box nýjasta æðið í líkamsræktinni?

Gigi Hadid tekur sig vel út í boxhringnum.
Gigi Hadid tekur sig vel út í boxhringnum. Skjáskot.


Fyrirsætur víðs vegar um heim deila því iðulega með aðdáendum sínum hvernig þær halda sér í formi á samfélagsmiðlum sínum sem og í viðtölum við tímarit og aðra miðla. Hefur farið mikið fyrir því undanfarið að fyrirsætur iðki box. Meðal þeirra sem sést hafa á boxæfingum eru systurnar og ofurfyrirsæturnar þær Gigi og Bella Hadid en báðar eru þær einstaklega vel á sig komnar líkamlega um þessar mundir. Með því að boxa brennir þú hratt og styrkist á sama tíma. Vinsældir íþróttarinnar hafa svo sannarlega náð að teygja sig til Íslands en sjaldan hafa jafnmargir stundað box hér á landi.

Samfélagsmiðlastjarnan Manúela Ósk er meðal þeirra sem er byrjuð að stunda box en hún er búsett í Los Angeles um þessar mundir en einnig hefur söngkonan Þórunn Antonía sést með hanskana á lofti í Mjölni.

Ofurfyrirsætan Adriana Lima með hanskana á lofti.
Ofurfyrirsætan Adriana Lima með hanskana á lofti. Skjáskot.
Gigi Hadid hefur verið mjög dugleg að stunda box að …
Gigi Hadid hefur verið mjög dugleg að stunda box að undanförnu.
Sömuleiðis systir hennar Bella Hadid en hún er í fantaformi …
Sömuleiðis systir hennar Bella Hadid en hún er í fantaformi þessa dagana.
Þórunn Antonía hefur birt myndir úr boxhringnum á samfélagsmiðlunum að …
Þórunn Antonía hefur birt myndir úr boxhringnum á samfélagsmiðlunum að undanförnu. Ljósmynd/Mihaela Noroc









mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál