John Goodman 100 kílóum léttari

John Goodman er óþekkjanlegur eftir að hann léttist um 100 …
John Goodman er óþekkjanlegur eftir að hann léttist um 100 kg.

Stórleikarinn John Goodman er heldur betur búinn að skipta um lífsstíl. Leikarinn góðkunni var orðinn heldur þéttur eða um 200 kíló þegar honum fannst mál að linnti og ákvað að gera eitthvað í málunum. Aðferð Goodman var ansi einföld. Hann hætti að drekka brennivín, neyta sykurs og fór að hreyfa sig.

Ferlið tók rúm tvö ár og er hann ákaflega ánægður með árangurinn. Í viðtali er haft eftir honum að lífið sé mun einfaldara nú enda þurfi hann ekki sífellt að vera að velta fyrir sér hvaða ómeti hann eigi að troða í sig næst. Það er hreint ótrúlegt að sjá breytinguna sem sjá má á myndum með fréttinni.

John Goodman árið 2014. Þá var hann örlítið þykkari.
John Goodman árið 2014. Þá var hann örlítið þykkari. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál