„Að fara daglega í sund er eitt það besta sem ég geri með krökkunum okkar og Eik systur. Við njótum okkar öll. Ég gef mér tíma til að fara í Baðstofuna í Laugum eftir ræktina á meðan börnin njóta sín í lauginni. Síðan leikum við okkur og syndum saman í lauginni. Hreyfingin er frábær og samveran ekki síðri en við endum sundferðirnar alltaf á því að slaka á saman í heita pottinum þar sem við spjöllum um lífið og tilveruna,“ segir Ellý á Fréttanetinu.