Ísak Máni Grant mun keppa á Íslandsmótinu í fitness um páskana. Hann er sonur eins fremsta einkaþjálfara landsins, Arnars Grant, og hefur æft frá því hann var 14 ára. Hann hefur einnig keppt tvisvar í unglingaflokki í fitness og komst á verðlaunapall í fyrra. Ísak Máni er fæddur 1998 og því 19 ára.
Þegar ég spyr Arnar hvort hann sé að þjálfa son sinn segist hann hjálpa honum eins og hann geti.
„Hann fær stundum ráðleggingar frá mér en gerir mest sjálfur. Siggi Gests hefur verið að aðstoða hann líka.“
Þegar Arnar er spurður að því hvað komi fólki á verðlaunapall nefnir hann aga og skipulag.
„Auðvitað skiptir líkamsbygging líka máli og að koma árangrinum frá sér á sviðinu. Það þarf að æfa pósur alla daga. Að pósa vel er ákveðin list,“ segir hann.
Arnar hefur sjálfur keppt oft og mörgum sinnum í fitness. Þegar ég spyr hann hvort hann sé hættur að keppa segir hann erfitt að svara því. Ég veit ekki hvort ég keppi aftur en ætla ekki að útiloka neitt. Skrokkurinn er í topp standi. Ég borða alltaf hollt og held mér í formi,“ segir hann.
En hvað er svona skemmtilegt við fitnessið? „Það skemmtilegasta við að keppa í fitness er að sigra sjálfan sig. Vita að maður getur verið helköttaður. Finna hvernig líkaminn bregst við breytingum í mataræði og æfingum. Hver og einn upplifir þetta samt mismunandi.“