Svona komst Emma Stone í form

Emma Stone er í góðu formi.
Emma Stone er í góðu formi. mbl.is/AFP

Jason Walsh þjálfaði Emmu Stone fyrir La La Land en hún þurfti að vera í góðu formi fyrir öll dansatriðin. Hann segir að það hafi aðallega verið tvær æfingar sem hún hafi æft, annars vegar réttstöðulyfta og hins vegar hnébeygja á öðrum fæti. 

„Fyrir eitthvað eins og La La Land, þar sem þú ert að dansa allan daginn, viltu vera sterkur til þess að geta haldið út allan daginn,“ sagði Walsh við Women's Health. Réttstöðulyftan er frábær til þess að styrkja allan líkamann að sögn Walsh en hnébeygja á öðrum fæti er góð til þess að auka jafnvægi og hreyfanleika í mjöðmunum. 

Hann bætir þó við að það sé gott að lyfta svona þrisvar í viku og gera eitthvað annað á milli. Stone elski til dæmis að fara í jóga. Walsh hefur þjálfað fleiri stjörnur til dæmis Jennifer Aniston og Irinu Shayk.

Emma Stone tók duglega á því í ræktinni fyrir La …
Emma Stone tók duglega á því í ræktinni fyrir La La Land. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál