Fáðu magavöðva eins og Kendall Jenner

Kendall Jenner er með vel tónaðan líkama.
Kendall Jenner er með vel tónaðan líkama. mbl.is/AFP

Þó svo að Kendall Jenner sé með einkaþjálfara sem hjálpar henni að halda líkamanum vel tónuðum nýtir hún einnig tímann fyrir framan sjónvarpið til þess að æfa magavöðvana samkvæmt Women's Health

„Stundum þegar ég er að horfa á sjónvarpið hugsa ég með sjálfri mér að ég ætti að vera að gera magaæfingar núna, þá stend ég upp úr sófanum og geri þær,“ segir Jenner.

Fyrirsætan og raunveruleikastjarnan mælir með smáforritinu Instant Abs Trainer. Forritið er frítt og hún notar það þegar hún er ekki að æfa með einkaþjálfaranum sínum, Gunnari Peterson. „Mér finnst skemmtilegast að æfa magavöðvana,“ segir Jenner

Eftir að Jenner mælti með smáforritinu hefur fjöldinn sem notar forritið margfaldast. Enda er stjarnan með fallega magavöðva.  

 

Kendall Jenner finnst skemmtilegt að æfa magavöðvana og finnst ekki …
Kendall Jenner finnst skemmtilegt að æfa magavöðvana og finnst ekki leiðinlegt að sýna sig. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál