Ætli þolfimin snúi aftur?

Það er hressandi að stunda þolfimi.
Það er hressandi að stunda þolfimi. mbl.is

Það eru tískustraumar í líkamsrækt eins og í öðru, í dag stundar fólk crossfit og hjólreiðar eins og enginn sé morgundagurinn. Hvað kemur næst er þó stærri spurning en það má láta sig dreyma um að fólk fari að stunda þolfimi í spandex-göllum af fullum krafti í framtíðinni. 

Fyrir áhugasama má skoða ýmis myndbönd á netinu en auðvelt er að gera æfingarnar heima í rúmgóðri stofu. 

Það er hin fínasta skemmtun að svitna í góðum félagsskap við hressa þolfimitónlist. Í þessu myndbandi þurfa að vera tveir og tveir saman og notast þarf við sérstakt vegasalt. 

Þetta myndband ætti að koma öllum í bæði gott form og gott skap. 

Íslendingar áttu sinn eigin þolfimimeistara. Hér sést Magnús Scheving gera þolfimiæfingar fyrir lengra komna hjá Hemma Gunn. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál