Bestu vítamínin eftir fertugt

mbl.is/ThinkstockPhotos

„Vítamín leika lykilhlutverk í að jafna orku, matarlanganir og sykurlöngun líkamans. Eftir því sem árin líða verður sífellt mikilvægara að hugsa um breytingar á næringu m.a. vegna breytinga á hormónum og eru nokkur vítamín sem eru góð samhliða hollu mataræði,“ segir Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi í sínum nýjasta pistli: 

B12

Þegar fólk er komið á fertugsaldur og ekki síst fimmtugsaldur er æskilegt að taka inn B12 vítamín. B12 leikur lykilhlutverk í orku, eðlilegri blóðrás og heilastarfsemi. Skortur á B12 er meðal annars hárlos, minnisleysi og aukin stresseinkenni.

B12 finnst í dýraafurðum eins og kjúklingi, eggjum og fiski. Upptaka líkamans á B12 er einnig algengt að fari versnandi með árunum, sérstaklega í kringum fimmtugt. Fyrir bestu upptöku á B12 er gott að taka það inn með mat og í fljótandi eða uppleysanlegu formi eins og með spreyi eða freyðitöflu.

Magnesíum

Eitt af því sem magnesíum gerir fyrir okkur er að jafna blóþrýstinginn, sem er sérstaklega mikilvægt fyrir konur yfir fertugu þar sem þær eru í áhættuhópi fyrir of háan blóðþrýsting. Ef þú upplifir mikið af bólgum eða streitu getur magnesíum einnig verið frábært bætiefni að taka þar sem magnesíum kemur á jafnvægi og hjálpar að stjórna streituhormónum. Magnesíum styður einnig við upptöku líkamans á kalsíum og leikur lykilhlutverk í heilbrigðri vöðva-, tauga- og hjartastarfsemi.

Það gæti komið þér á óvart að magnesíum finnst í grænu laufgrænmeti, baunum, hnetum, fræjum og avókadó til dæmis. En það er eitthvað af mínum uppáhaldsfæðutegundum og auðvelt að gera úr góðan drykk eða seðjandi salat eins og má finna margar uppskriftir að í bókinni minni Lifðu til fulls. Smellið hér kíkja inn í hana.

Ráðlagður dagsskammtur eftir fertugt er 320 mg. Magnesíum fæst í töflu- eða duftformi og eitt besta magnesíum sem ég veit er frá Dr. Mercola og tek ég það samhliða slökunardufti á kvöldin. Hlustið á líkamann eftir magnesíumþörf eða leitið til læknis fyrir ráðleggingar þar sem ofneysla getur orsakað ógleði, niðurgang og krampa.

D-vítamín

D-vítamín er lífsnauðsynlegt og leikur lykilhlutverk í upptöku á öðrum næringarefnum. D-vítamín hefur áhrif á ónæmiskerfi, blóð, æða-, vöðva- og taugakerfi og talið sporna við ýmsum aldurstengdum heilsukvillum eins og sykursýki og hjartasjúkdómum.

D-vítamín fæst ekki í fæðunni nema það sé viðbætt og algengt að lýsi og mjólkurafurðir séu viðbætt D-vítamíni. Sama og öll bætiefni er betra fyrir upptöku að velja dropa eða vökva og því væru D-vítamín dropar tilvaldir.

Það getur verið sniðugt að taka vítamínstöðu líkamans hjá lækni til að sjá ef það er eitthvað sem þú þarft að bæta við.

Fylgstu svo með næsta þriðjudag fyrir næsta helming greinar en þar deili ég þremur vítamínum í viðbót sem eru nauðsynleg hjá konum eftir fertugsaldur!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál