Stuttar og góðar æfingar Kendall Jenner

Kendall Jenner gerir mikið af magaæfingum.
Kendall Jenner gerir mikið af magaæfingum. mbl.is/Kendallj.com

Fyrirsætan Kendall Jenner er þekkt fyrir flotta magavöðva en nýlega birti hún 11 mínútna langt æfingaprógramm sem hægt er að gera heima í stofu. Eins og svo margir aðrir hefur hún ekki alltaf tíma til þess að fara í ræktina og þá gerir hún bara magaæfingar heima í stofu. 

Byrdie birti æfingarnar hennar Jenner og það ættu flestir að geta gert einn hring af þeim á stofugólfinu enda tekur það ekki langan tíma. 

  • Planki á olnbogum, 30 sekúndur. 
  • Planki í armbeygjustöðu, 30 sekúndur.
  • Hliðarplanki, 15 sekúndur.
  • Lyfta sér upp í hliðarplanka, fimm endurtekningar
  • Planki á einum fæti/einni hendi, 15 sekúndur
  • Ruggandi planki, 15 sekúndur. 
  • Planki - hné í átt að olnboga, 10 endurtekningar
  • Venjulegar magaæfingar, 20 endurtekningar
  • Liggja á bakinu og hjóla, 30 sekúndur. 
  • Magaæfingar með fætur upp í loft, 20 sekúndur. 
  • Magaæfingar með fætur í froskastöðu, 15 endurtekningar. 
  • Magaæfingar til hliðar, 15 endurtekningar. 
  • Liggja á bakinu og lyfta fótum upp í 90 gráður, 15 endurtekningar. 
Kendall Jenner.
Kendall Jenner. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál