Michelle Obama fer í vinkvennaæfingabúðir

Michelle Obama er í hörkuformi.
Michelle Obama er í hörkuformi. ljósmynd/Instagram

Fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna heldur reglulega íþróttaæfingabúðir fyrir sig og vinkonur sínar. Þar koma vinkonur saman yfir helgi og taka á því. 

„Vinkonur mínar hafa verið til staðar fyrir mig í gegnum alls konar breytingar í gegnum árin, þar á meðal eina stóra mjög nýlega,“ skrifaði Obama á Instagram og bætti því við að þær gerðu sitt besta til að vera heilsusamlegar hvort sem það væri með því að stunda erfiðar æfingar eða fara í göngutúra. 

Konurnar hittast og æfa saman.
Konurnar hittast og æfa saman. ljósmynd/Instagram
Obama, sem var dugleg að hvetja til heilsusamlegs lífstíls á meðan hún bjó í Hvíta húsinu, segir að tilgangur æfingabúðanna sé að eyða tíma saman og minna sig á að ef þær ætli að sjá um aðra þurfi þær fyrst að fara vel með sjálfar sig.  
Það er því ekki svo vitlaust að fara eftir ráðum Obama og hreyfa sig með vinum sínum í sumar. 
Það er hægt að gera margt vitlausara í helgarferð með …
Það er hægt að gera margt vitlausara í helgarferð með vinkonunum en að stunda líkamsrækt. ljósmynd/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál