74 ára vaxtarræktargyðja var í lélegu formi

Í mjög góðu formi!
Í mjög góðu formi!

Það eru ekki bara kornungar guggur sem geta náð árangri í vaxtarræktinni. Það hefur hin 74 ára Janice Lorraine frá Ástralíu sannað svo um munar. Fyrir um 20 árum, þegar hún lauk starfsferli sínum sem skólasálfræðingur, ákvað Janice að hún ætlaði sér ekki að tapa baráttulaust fyrir elli kerlingu og hóf líkamsrækt af miklum móð. 

Frá þeim tíma hefur hún tekið þátt í fjölda líkamræktarkeppna og náð góðum árangri. Janice leggur mikið á sig til að halda kroppnum í standi, gerir 60 armbeygjur á dag, hleypur 32 kílómetra á viku og spriklar í fjölda ræktartækja reglulega.

Hún stundar því alhliða líkamsrækt, borðar hollan mat og sér vel um sig. Þátttaka Janice í vaxtarræktarmótum er sameiginlegt áhugamál hennar og eiginmanns hennar en hann er 23 árum yngri en Janice. Þau ferðast saman um allan heiminn. Hún hnyklar vöðvana og hann sér um að maka hana með brúnkukremum.

HÉR er hægt að lesa bloggið hennar Lorraine. 

Janice Lorraine er 74 ára og keppir í vaxtarrækt.
Janice Lorraine er 74 ára og keppir í vaxtarrækt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál