Aniston verður kófsveitt af þessari æfingu

Jennifer Aniston.
Jennifer Aniston. AFP

Leikkonan Jennifer Aniston er þekkt fyrir að hafa alltaf verið í fantaformi. Þegar hún er ekki í jóga eða í ræktinni með einkaþjálfara sínum finnst henni best að skella sér örsnöggt á hlaupabrettið til þess að hreyfa sig aðeins.

Leikkonan passar að hreyfa sig á hverjum einasta degi en þegar hún fer á hlaupabrettið hleypur hún aðeins í 20 mínútur. 

Í viðtali við lífstílssíðuna Well and Good sagði leikkonan frá einföldu og stuttu æfingarprógrammi á hlaupabrettinu sem að gerir hana gegnumblauta af svita. 

„Ég hækka hallan á brettinu, hleyp í tvær mínútur, labba í eina, hleyp í tvær - þetta geri ég í 20 mínútur þangað til ég er bara gegnumblaut,“ sagði leikkonan.

Aniston hefur alltaf verið í frábæru formi.
Aniston hefur alltaf verið í frábæru formi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál