Fer tvisvar í ræktina á morgnana

Victoria Beckham fær að vera í friði í ræktinni.
Victoria Beckham fær að vera í friði í ræktinni. mbl.is/AFP

Victoria Beckham er þekkt fyrir að vera lítið annað en skinn og bein. Ástæðan er mögulega sú að fatahönnuðurinn og fyrrum kryddpían fer tvisvar sinnum í ræktina á morgnana.

„Ég vakna frekar snemma, um klukkan sex, tek klukkutíma í ræktinni áður en krakkarnir vakna, síðan gef ég þeim morgunmat og David eða ég fer með þau í skólann. Ég kem síðan öðrum klukkutíma af líkamsrækt fyrir áður en ég fer á skrifstofuna,“ sagði Beckham. 

Beckham segir að tíminn í ræktinni sé eini tíminn sem hún fái að vera í friði. Enginn vogar sér inn í líkamsræktarherbergið meðan hún er þar. Sé hún hins vegar inni í eldhúsi of lengi er fólk alltaf að biðja hana um að kíkja yfir einhverja pappíra. 

Þó svo að frú Beckham segist sjálf gefa börnunum sínum að borða sér hún ekki um allt á heimilinu og viðurkennir hún að hún reiðir sig aðstoðarkonuna sína. „Ég hlusta á hana þegar hún segir mér að það sé kominn tími á að fara heim og borða kvöldmat með David og krökkunum,“ sagði Beckham. 

Victoria Beckham.
Victoria Beckham. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál