Magaæfingar Shakiru fá fólk til að svitna

Shakira sló heldur betur í gegn þegar hún söng og …
Shakira sló heldur betur í gegn þegar hún söng og dansaði við lagið Waka Waka. skjáskot/Youtube

Shakira er ekki bara þekkt fyrir sérstaka söngrödd heldur heillaði hún fólk líka upp úr skónum með danshæfileikum sínum úr Waka Waka-myndbandinu. Til þess að geta dansað á meðan hún syngur þarf söngkonan heldur betur að halda sér í formi. 

Nýlega birti stjörnueinkaþjálfarinn Anna Kaiser myndband af söngkonunni gera magaæfingar. Ef fólk vill dansa Waka Waka eins og Shakira ætti það að horfa á myndbandið og skella sér á bakið. 


Þeir sem vilja prófa fleiri æfingar sem Shakira gerir geta sest upp við vegg eins og hún gerir í meðfylgjandi myndbandi. Til að byrja með er einfaldlega hægt að setjast í 90 gráður upp við vegg en þegar meiri styrkur er kominn er hægt að halda á lóðum og kreista bolta með lærvöðvunum. 

@theannakaiser @aktinmotion getting me ready for tour! #ElDoradoWorldTour Shak

A post shared by Shakira (@shakira) on Sep 6, 2017 at 9:59am PDT



Shakira.
Shakira. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál